Menntamál - 01.08.1960, Síða 29

Menntamál - 01.08.1960, Síða 29
MENNTAMÁL 123 greinargerð, sem hann sendi Skólamálanefnd, eindregið hvatt til, að komið verði á fót geðverndarstofnun. Féllst nefndin á röksemdir hans. f greinargerð hans segir m. a. á þessa leið: „Auk framantaldra breytinga á námi kennaraefna, þarf að koma hér á fót geðverndarstofnun, sem getur rann- sakað nemendur, ef þeir fylgjast ekki með í námi eða eru á einhvern hátt afbrigðilegir, og ef vel ætti að vera, þyrfti hún einnig að geta veitt alvarlega taugaveikluðum börn- um læknismeðferð. Hún yrði að ráða yfir þeim mannafla, að hún gæti sent menn í skóla úti á landi. Geðverndar- stofnanir þykja nú óhjákvæmilegur bakhjarl skóla í ná- grannalöndum okkar, og tel ég það einhverja brýnustu nauðsyn íslenzkra skóla, að slík stofnun rísi hér upp. Frá mínu sjónarmiði er það fjarstæða, að öll 7 ára börn séu skylduð til skólagöngu, án þess að skólunum séu jafn- framt fengnir möguleikar til að gera sér viðhlítandi grein fyrir þroska þeirra og andlegri heilbrigði. Eins og nú er, má kalla, að ausið sé stórfé í umfangsmikið skólakerfi að meira eða minna leyti í blindni. Það er víst, að í mörgum tilfellum er starf skólanna ekki einungis unnið fyrir gíg, heldur eru nemendur beinlínis skemmdir til langframa með námskröfum, sem þeim eru óviðráðanlegar. Þetta hlýtur svo að vera, meðan renna verður að miklu leyti blint í sjóinn um getu einstakra nemenda. Til þess verður ekki ætlazt og er hvergi ætlazt, að kennarar geti af eigin rammleik gert sér grein fyrir því, hvers vegna nemandi nær ekki tilætluðum árangri í námi, og samið námsáætlun, sem hæfir honum. Til þess getur þurft rannsókn, sem á einskis eins manns færi er að leysa af hendi. Hin miskunnarlausa og óvitur- lega gagnrýni, sem kennarar sæta löngum, ef barn nær ekki þeim námsárangri, sem foreldrum þess þóknast, kæf- ir líka tilraun kennaranna til að sníða nemendum náms- efni, sem þeim hæfði betur. Hér er því brýn þörf aðila,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.