Menntamál - 01.08.1960, Page 54

Menntamál - 01.08.1960, Page 54
148 MENNTAMÁL fræði, heimspeki og sálarfræði, sem snerta nærri öll svið mannlegrar hugsunar. Þá mun vaxa upp fólk, sem ekkert hefur lært til hlítar, en lætur í ljós skoðun sína á öllum mögulegum sem ómögulegum málum. Gegn þessum voða er aðeins eitt ráð: að halda fast við vísindalegar kröfur kennaraháskólans. En hvað merkir vísindalegur ? Það er afstaða, viðhorf, sem einkennist af réttlæti, raunsæi, virðingu fyrir staðreyndum, ýtrustu sjálfsgagnrýni og, framar öllu öðru, skýru takmarki, sem skipulega er stefnt að. Maður verður ekki aðeins að þekkja árangurinn, heldur einnig aðferðir til þess að ná honum. Þetta er munurinn á vísind- um og skoðun eða viðtekinni trú. Vísindalegt starf er fólg- ið í því að hugsa með gagnrýni, spyrja afdráttarlaust, vera varkár í staðhæfingum og fella ekki dóm, þar til málið hefur verið rannsakað frá öllum hliðum. Það er fólgið í því að þekkja hið margþætta eðli allra hluta, að gera sér glögglega ljóst eigið álit, en hlusta jafnframt á rök ann- arra og geta séð málin af sjónarhóli þeirra. Að lokum er það fólgið í því að geta greint milli þess, sem við vitum, og hins, sem við vitum ekki. Maður verður að vera nógu hrein- skilinn til að viðurkenna vanþekkingu sína og halda áfram að afla sér allrar fáanlegrar þekkingar fremur en að sökkva sér niður í heilabrot eingöngu. Sú freisting að slá um sig með fánýtu tali og nota löng, en marklaus orð, er sérstaklega sterk í uppeldisfræði, heim- speki og sálarfræði. Af þessum ástæðum verður hver nem- andi frá byrjun að leitast við að auka þekkingu sína, auk þess sem hann verður að hafa vald á aðferðum, aga hugs- un sína og skerpa dómgreind varðandi allar hugmyndir. Auk kerfisbundinna starfsaðferða ætti hann að læra að skilja frumvandamálin, grundvallarspurningarnar. Þann- ig mun hann uppgötva, hve mörgum spurningum er ósvar- að og hve mikil fyrirhöfn liggur að baki jafnvel minnstu framfara vísindanna. Það er óhjákvæmilegt, að hann verð-

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.