Menntamál - 01.08.1960, Síða 61
MENNTAMAL
155
að geta, að vinna sú er hér um ræðir, er orðin algerlega
vélræn, og einnig þess, að fáir munu svo fluglæsir, að ekki
bindist eitthvað af athyglinni við sjálfan lesturinn. Komi
torskildir kaflar eða setningar, er endurtekið eftir þörfum.
Með þessu móti verður námið ótrúlega miklu auðveldara og
aðgengilegra, svo að ekki sé nú talað um tækifærin, sem
þarna skapast til að sitja jafnframt við ánægjulega og
arðbæra vökuvinnu. Sú reynsla, sem ég hef fengið af segul-
bandinu þann stutta tíma, sem ég hef notað það við námið,
hefur sannfært mig um ágæti þess til slíkra nota. í þessu
sambandi er rétt að benda á, hve mikils virði þetta tæki
gæti orðið þeim, sem erfitt eiga með lestur vegna augn-
sjúkdóma. Það gefur auga leið, hve mikill munur er á því
að pæla í gegnum verkefnin svo og svo oft eða að lesa þau
einu sinni inn á bandið og geta síðan spilað hvert þeirra
sem er og svo oft sem þörf er á, án þreytu og vera laus við
lestrarlúann. Þá er full ástæða til að benda á þau tækifæri,
sem þetta tæki skapar þeim, er vilja hagnýta sér tungumála-
kennslu útvarpsins. í stað þess að hlusta einu sinni á hverja
kennslustund á ákveðnum tíma er hægt, með þar til gerðri
klukku, að taka upp kennslustundina, þótt enginn væri
heima, og spila hana síðan eftir þörfum, þegar tími ynnist
til. Ég er viss um, að t. d. mörg húsmóðirin vildi fegin nota
sér þennan möguleika. Þá er enn ein hlið á þessu máli, sem
ég vildi minnast á, en það er upptaka á kennslu í skólun-
um sjálfum. Til þess er þessi tegund segulbandstækja ekki
heppileg, bæði vegna þyngsla og svo hins, að hvergi mun
vera möguleiki á að tengja mörg tæki í kennslustofu, svo
að vel fari. Hins vegar munu vera framleidd rafhlöðusegul-
bandstæki lítið þyngri en ferðaritvél, sem myndu einkar
heppileg til slíkra nota, og gætu þau vitanlega komið að
sömu notum og það tæki, sem ég hef notað. Slæ ég svo
botninn í þetta með þeirri ósk, að forystumenn skólamála
íhugi, hvort hér muni um að ræða mál, sem vert væri að
athuga nánar. Björgvin Einarsson.