Vorið - 01.12.1959, Síða 3
OKTÓBER—DESEMBER 1959
VOR IÐ
25. ÁRGANGUR
4 HEFTI
Kuöldib helga
Kveikt eru Ijós, í kvöld skal bjart og hlýtt,
kaldan þótt blási, hríð á níðum dynji.
Friðsœlu býður sönglag sumarþýtt,
sær þó i fjarska 'dimmt á klettum stynji.
Kotbœinn sveiþar heiður helgiljómi.
Fljörtu í lofgjörð mœtast einum rómi.
Fegurstum klæðum búin bíður þjóð,
barnið í vöggu hjúpað reifum nýjum.
Sléttist úr hrukkum ásýnd ellimóð.
Æskunnar dagar rísa úr gleymskuskýjum.
Allir svo góðir, glaðir fram úr máta.
Gjöfulli hönd — í kvöld má enginn gráta.
Allt er sem nýtt, sem áður gamalt var,
ylríkri svörin, hrundið hverjum skugga.
Fegurri draum ei fyrir augun bar.
Frostrósir sýnast brosa á köldum glugga.
Baðstofan þröng til lofts er hálfu hærri,
himinninn nœr, er áður var svo fjærri.
Sálfjötrar rakna, bráðnar andans is,
inni er sumar, hvass þó bylur næði.
Draumborg er hrundi, frið úr rústum rís.
Rósir þar sþretta, er fyrr var kalið svæði.
Friðboðar himins fara kærleikseldi.
fjörðu að tind á þessu helga kveldi.
RICHARD BECK.