Vorið - 01.12.1959, Síða 22
140
V O R I Ð
heimildarbækur. Verkefni fyrir
næsta ungtemplarapróf verður sent
til barnastúknanna í haust.
Hér á eftir birtist ein ritgerðin.
ÁFENGI OG TÓBAK
1. Skýrðu frá skaðlegum áhrif-
um tóbaksnautnar, einkum áhrif-
um vindlingareykinga á hjarta og
lungu.
Eftir því sem reykingamaðurinn
reykir meira, því minna getur hann
hlaupið, verður móður og gefst að
lokum upp. Það er því mjög slæmt
fyrir íþróttamenn að reykja. Einnig
geta æðarnar lokazt. Því meira, sem
þær þrengjast, verða menn móðari
og óeðlilegur hjartsláttur fer að
gera vart við sig. Getur þessi veiki
síðan dregið manninn til bana.
Þeir, sem reykja, eiga einnig á
hættu að fá krabbamein í lungu
(dungnakrabba) og deyr fjöldi
manns úr þeirri veiki árlega. Þeim
er líkara hættara við lungnakvefi
og fylgir því þrálátur hósti. Hann
er bæði óþægilegur fyrir þá, sem
hósta og líka fyrir þá, sem þurfa að
hlusta á hann. Reykingar eru öll-
um óhollar og valda bæði þeim,
sem reykja, og öðrum óþægindum á
margan hátt.
2. Skýrðu frá í hverju ofdrykkju-
hættan er fólgin.
Það er ekki hægt að segja að
maður verði ofdrykkjumaður við
fyrsta staupið. En við endurtekna
notkun þessara efna: áfengis, mor-
fíns, heroins, svefnlyfja, ópíums og
fleiri verður hún jafnan að ómót-
stæðilegri löngun. Þeir, sem verða
ofdrykkjumenn, verða oft aumingj-
ar andlega og líkamlega og ófærir
að gegna þeim skyldum, sem mann-
félagið leggur hverjum heilbrigð-
um manni á herðar. Það er því
bezt fyrir hvern mann, ungan sem
gamlan, að halda sig algjörlega frá
áfengisnautn. Það er skylda hvers
manns að varðveita sem bezt heilsu
sína. Hún er dýrmætur fjársjóður.
Heilsulaus maður er oftast öðrum
byrði.
3. Skýrðu frá sambandi áfengis
og afbrota.
Þegar menn eru drukknir vita
þeir lítið hvað þeir gera og gera
oft það, sem þeir mundu ekki gera
algáðir. Þeir hafa drukkið frá sér
vitið. Þeir brjótast inn í hús og
stela, fremja morð, lenda í illdeil-
um og slagsmálum. Eru margir
þeirra, sem nú sitja í fangelsum,
þangað komnir fyrir ofneyzlu
áfengis. Þeir eyða miklum pening-
um fyrir brennivín, sektir og ann-
að slíkt. Þeir verða því æ fátækari
eftir því sem þeir drekka meira og
gera meira af sér.
4. Skýrðu frá þínu eigin áliti á
áhrifum áfengis á skemmtanalífið.
Ekki skil ég í því, að mennirnir
skemmti sér betur ef þeir eru full-
ir. Þar lenda þeir í slagsmálum, rífa
föt og brjóta og skemma borð,
stóla, glös og annað. Lenda í hegn-