Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1929, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.12.1929, Blaðsíða 6
210 B J A R M I I dag væri Sadhúinn vinur vor fertugur, ef hann lifði, og oafmælis- brjefin« eru að koma hingað. Með bróðurkveðju. G. H. Watson. Sænsk kristniboðs hjón, er sendu framanskráð brjef tii sænskra blaða í haust, bæta við: »Hinn kæri bróðir vor er borfinn brott — nei, horfinn heim. Einhversstaðar í Himalayafjöllum hvilir lík hans. Enginn veit hvar gröfin er. Guð tók hann til sin, og við sjáum hann ekki framar hjerna megin. Hann unni Tibet og bar glaður þrautirnar, sem starfinu þar fylgja. Nú hefir hann fórnað lífinu fyrir það land. — Ferðastafinn lagði hann frá sjer í pílagrímsför þar. Guðsmaður, sjáandi, spámaður hefir lokið för sinni Hann var meðal göf- ugustu sona Indlands, og fregnin um andlát hans vekur trega og söknuð meðal kristinna safnaða um endi- langt Indland og meðal þúsund þús- unda um öll kristin lönd. En margir eru þeir, sem þakka Guði fyrir æfi- starf hans. Framkoma hans, Kristi lík, vitnisburður i ræðu og riti, og alt starfið hans, mun lifa meðal komandi kynslóða. — Hann var í þeim hóp, sem tala þótt þeir sjeu dánir«. Margrjet Sveiusson kristniboði skrifar 6. okt. frá New York, að ferðin vestur hafi gengið ágætlega, og biður Bjarma að flytja kærar kveðjur til allra, sem greiddu götu hennar að einhverju leyti hjerlendis sl. sumar. — Áritun hennar í vetur verður til systur hennar: Mrs. Frederiksen 315 — 87jh Str. Brooklyn N. Y. U. S. America. Jölasöngur barnanna. Loga jólaljósin, pví líjsins brosir rósin, þú, kœra barn, svo blítt við þjer — þinn besti vinur kominn er — býr sjer loj af barnanna vörum. Jesú blíði bróðir og barnahirðir góði — ó, kom í hjörtun himni frá að hugga þá, er gleði þrá — bú þjer lof af barnanna vörum, Gef oss, barnið besta, þú besii allra gesla að verða’ af þínu Ijósi Ijós, að lí/ga marga fölva rós — bú þjer lof af barnanna vörum. Tak við litlu Ijóði, sem lojsöng, Jesú góðil Ó, hegrða okkar hjarians mál og helga okkar líf og sál, — bú þjer lof af barnanna vörumf (B. J.). Jólakveðjan 1929 var ekki send frá Kaupmannahöfn fyr en 20. nóv. sl., og komst því ekki frá Reykjavík fyr en með »Brúarfoss« og »Esju« í desember. Má búast við að hún komist ekki al- staðar til barnanna fyrir jólin, nema prestar og kennarar leitist viö að ná fljótlega í Jólakveðju-pakkana á viðkomu- stöðum skipanna. — Ef Iesendurnir verða pess varir, að engin Jólakveðja komi á eitthvert barna- heimili í des. eða jan., eru þeir beðnir að lata afgreiðslu Bjarma vita um pað sem fyrst. — Ef einhver prestur getur ekki komið við eða kærir sig ekki um að úthluta pessu jólahefti, væri æskilegt að fá áritanir barnakennara í því presta- kalli.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.