Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1929, Blaðsíða 15

Bjarmi - 01.12.1929, Blaðsíða 15
B J A R M I 219 Ný Ijóðabók. Tómslundir nefnist ný Ijóðabók eftir Guðrúnu JchannsdóLtur frá Brautarholti. Guðrún er áður góð kunn af ljóð- um sínum. Veit jeg því með vissu að margur heilsar ljóðabókinni henn- ar með fögnuði. Það er hjaitsláttur kærleikans í ljóðum Guðrúnar: »Pví enginn getur með glaðri lund, gengið um nokkra dagsins stund hjá annara angri og tárum«. Samúð með sorgarbörnunum og næmur skilningur á kjörum annara, er hinn rauði þráður Ijóða hennar: »Pað verða allir bekkjarbræður í böli og stríði pjáninganna«. Hlýr vorblær leikur um ljóðin hennar, og lyftir huganum yfir grá- móðu hversdagslífsins. Varlega dæma þau brot og bresti en visa með trúarinnar öruggu vissu á skjólið, sem aldrei bregst: »Lát pá finna, faðir hæða, að fyrir pjer er gott að kvarta«. Vögguþulurnar gæti jeg trúað að mörg íslensk móðirin ætti eltir að læra, og raula þær við vöggu litla barnsins síns. Par er ást og við- kvæmni móðurhjartans færð í fagran búning: »Allar vonir allar prár allar bænir öll mín tár helga’ eg pjer um æfi ár í pví sanna og hreina og bið pjer bætur meina«. — Hjer lalar skáldkonan fyrir munn mæðranna, hún hefir lagt þeim ljóð á tungu, ljóð sem óma að innsta grunni móðurhjaitans. Og börnin, hvort sem þau eiga að baki mörg ár eða fá, sem hafa ekki gleymt móður sinni, eifiði hennar og kærleiksfórnum fyrir þau, inunu vafa- laust geta tekið undir með sk»ldkon- unni þegar hún ávarpar móður sína í hinu fagra jólaljóði á bls. 73: »Fyrir alla elsku pína, yl og hjartagæðin pín, púsundfalt jeg pakka vildi pjer af hjarta, mamma mín, og fyrir bljúgar bænir pínar, er baðstu Guð að leiða mig. Pað eru verndarverur minar, sem vaka til að minna á píg«. Ljóð, sem leiða yl í bngann og vaipa Ijósgeislum á brautina, eru góðir gestir, ekki sist á jólunum, og jeg tel Ijóðabók Guðiúnar Jóhanns- dóttur einkar heppilega jólagjöf handa þeim, sem kunna að meta það sem hreint er og göfugt. Að ytra frágangi er bókin hin snotrasta. Piýðileg mynd er frainan á bókinni, ljósið, sem varpar skini yfir vöggu ungbarnsins og á andlit móðurinnar við rokkinn, gefur glögga og sanna hugmynd um innihald bók- arinn, og er i fullu samræmi við efni hennar. Tómstundir kosta 5 krónur og fást bjá bóksölum. Jeg tel þeim pening- um ekki á glæ kastað, sem skift er á við bókina, og vel vaiið tómstund- um til þess að lesa hana. Guðrún Lárusdóttir. Sjómannastofan í Vestmannaeyjum. Pann 14. jan. p. á. var i fyrsta skifti opnuð Sjómannastofa hjer í Vestmanna- eyjurn, í sögu Eyjanna verður pað sennilega aldrei talið meðal stórviðbui ðanna, en í pví trausti að hægt verði að halda áfram í pá átt, sem pegar er stefnt, er ekki hægt að efast um að pessi starfsbyrjun verði talin með peim sporum, sem stigin hafa verið i rjetta átt af góðum mönnum og konum pessa bæjar. Starfið var hafið að tilhlutun K. F. U. M. og K. (hjer), og rekið i húsi peirra

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.