Bjarmi - 01.12.1929, Qupperneq 23
B J A R M I
231
VII. Sjerstök málefni tll þingsins.
Frá sjerfundum er haldnir voru
þingdagana hafa þessar tillögur
komið til ályktana-nefndarinnar:
a. Frá sjerfundi um heimatrúboð
f»innri missionvj.
Ályktana-nefnd II. lútherska al-
þjóðaþingsins ætti að fara fram á,
að heimatrúboðsnefnd verði mynduð
frá þeim lútherskum kirkjufjelögum,
sem taka þátt i alþjóðaþinginu. Þessi
nefnd hafi það hlutverk, í fullri sam-
vinnu við framkvæmdarnefndina, að
skýra greinilega á fundum alþjóða-
þingsins frá margbreyttri reynslu
heimatrúboðsstarfsins í ýmsum lönd-
um og efla milli þinga innbirðis
viðkynningu heimatrúboðs lútherskra
Ianda«.
b. Frá sjer/undi um sjómanna og
útflgtjenda-trúboð.
II. Lútherska alþjóðaþingið játar
það skyldu hvers lúthersks-kristins
manns og þakkar fórn fyrir meðtekna
náð Guðs, að taka alvarlegan þátt í
þjóðfjelags-umbótum, og vekur jafn-
framt eftirtekt allra lútherskra kirkna
og fjelaga á þeim meinum og erfið-
leikum, sem alþjóðasamtök ein fá
bætt verulega úr, og má þá fyrst og
fremst nefna erfiðleika útflytjenda og
sjómanna fjarri heimilum sinum.
Þingið leyfir sjer að beina alvöru-
fylstu tilmælum til allra leiðtoga rík-
is og kirkju, að gerðar sjeu opinber-
ar ráðstafanir til að koma í veg fyr-
ir illa meðferð útflytjenda og sjó-
manna í hafnarbæjum, að styðja og
efla starf kirkju vorrar meðal sjó-
manna og útflytjenda, er hún hefir
haft með höndum undanfarna ára-
tugi, og að koma til vegar að sjó-
menn geti notið sunnudagshelginnar,
sem aðrir menn«.
c. Frá sjerjundi um lútherska
blaðamensku.
Blaðanefndin er sannfærð um að
mikilsvert sje að koma á meiri sam-
vinnu lúlherskra blaða til stuðnings
lútherskri kirkju um allan heim og
leggur til að eftirfarandi ályktanir sjeu
gerðar í því máli:
I. í sjerhverju lúthersku kirkjufje-
lagi ætti að vera blaðafregnstofa
sje þess nokkur kostur, er starfi
örugglega í anda lútherska al-
þjóðaþingsins, alveg hliðholl lút-
herskri játningarkirkju,
II. Frumstofn þessara frjettastofa
einstakra landa ættu að vera
þrjár aðalstöðvar, ein fyrir Vest-
urheim, önnur fyrir Þýskaland
og sú þriðja fyrir Norðurlönd,
sem skiftust á um frjettir og
annað efni, sem hver um sig
sendi blöðunum.
III. Aðalmarkið, sem að þarf að
keppa, er að koma á lútherskri
alþjóða-skrifstofu, er gefi út fregnir
sínar á þrem aðalmálum lút-
herskra manna, þýsku, ensku og
»skandínavisku«. Æskilegt væri
og að koma á myndaútvegun,
ef til vill í sambandi við mynda-
stofu í Dresden (á Þýskalandi).
VI. Það þyrfti sem fyrst að gefa út
»handbók lútherskra blaða«, þar
sem væri greinileg áritun allra
slíkra blaða, sjerkenni hversblaðs
og heimilisfang ritstjóranna. Á
þann veg v&ri unt að koma á
blaðaskiftum til eflingar nánari
viðkynningar«.
Ályktana-nefndin Ieggur til að
þessar tillögur verði sendar fram-
kvæmdarnefndinni án þess að þingið
taki ákveðna afstöðu eða ályktanir
um þær. Vjer erum sannfærðir um
að framkvæmdarnefndin muni taka