Bjarmi - 01.12.1929, Blaðsíða 29
ÖJARMI
237
Bannlögin í Finnlandi.
Skrifstofustjóri í socíal-ráðuneyti Finna,
Liakka kanselliráð, frá Helsingfors, flutti
ýms erindi um áfengisbann Finnlands á
bindindisþingi Danmerkur liðið sumar.
Er hjer siutt ágrip af orðum hans.
Bannlögin ern 10 ára gömul I
Finnlandi, en baráttan fyrir þvi máli
miklu eldri. Árið 1907 saraþykti lög-
Liakka skrifstofustjóri.
gjafarþing Finna bannlög nærri í einu
hljóði — að eins fáeinir sænsk mæl-
andi þingmenn á móti. — En Rússa-
stjórn neitaði að samþykkja þau.
Jafnskjótt og fult sjálforræði var feng-
ið, 1919, komust þau á. en þá bafði
ófriðurinn mikli og síðan innanlands-
styrjöldin spilt mjög löghlýðni og
aukið stjettahatur. Bændur og verka-
menn höfðu aðallega borið málið
fram í fyrstu og eru helstu stuðnings-
menn þess enn. Seinna snerust prest-
ar og kennarar yfirleitt á sömu sveif,
en fjölda margir læknar og lögreglu-
menn, einkum i æðstu embættum
höfðu verið þeim mótfallnir, sjerstak-
lega f sænskumælandi hjeruðum Finn-
lands, er einmitt liggja flest með sjó
fram og á eyjunum þar sem hægast
er að smygla.
Alt þetta hafði vitanlega valdið
erfiðleikum um framkvæmd laganna,
en samt er langmestur hluti þings og
þjóðar eindreginn með bannlögunum,
og er sannfærður um að, þrátt fyrir
öll lagabrot hafa lögin aukið velmeg-
un almennings.
Allar tillögur, sem komið hafa fram
gegn lögunum á þingi Finna, hafa
verið tafarlaust feldar.
Andstæðingar laganna, er sjá að
þeir geta engu umþokað heima fyrir,
hafa, — liklega í samráði við erlend
andbanningafjelög — dreift út um
heiminn ótal lygasögum um slæman
árangur af lögunum. Rær eiga að
spilla sigurför svipaðra lagasetninga
í öðrum löndum, og eru þvf rækilega
birtar í blöðum andbanninga úti um
heim.
Jeg get nefnt eitt dæmi af mörgum,
sagði hr. Liakka.
í vor sem leið fór sú fregn frá
Helsingfors, að samkvæmt opinberum
skýrslum hefði tiundi hver maður í
höfuðborg vorri, Helsingfors, verið
sektaður árið sem leið fyrir bann-
lagabrot. — Rað mátti ekki minna
vera! — Skýrslurnar sjálfar sögðu:
Árið 1928, tók lögreglan í Helsingfors
20473 karla og 1390 konur fastar
fyrir drykkjuskap, 17662 þessa fólks
fjekk sektir eða þingri dóm. Auðvitað
eru þessar lölur sorglega háar, en
margt er þó að athuga áður en nokk-
ur sanngirni er að síma þær afbak-
aðar til erlendra blaða. lbúar borg-
arinnar voru í árslok 223544, og fjölda
margir þeirra, sem dóm fengu voru
aðkomumenn, sem sleppa sjer í stór-
borginni. Ennfremur er rjett að minn-
ast, að árið fyrir ófriðinn, meðan
engin bannlög voru í Finnlandi, og
íbúar í Helsingfors að eins 163083,