Bjarmi - 01.12.1929, Síða 43
BJARMI
251
einhver »Slrauma«-maður gæti ekki
fengið samþykta á einhverjum
»kirkjumálafuDdi« áskorun um að
brenna Passíusálmana og Helgakver
en fela þeim Iialldóri Kiljan Laxness,
Pórbergi Pórðarsyni og Einari Magn-
ússyni að gefa út spurningakver
handa börnum og húslestrabók til
lesturs um jól og langaföstu? Til
bráðabyrgða mætti líklega notast við
»Fræði Strauma« hin minni, Brjef til
Láru, Eldskírnina og Um kristni-
haldið í Suðursveit eftir Pórberg og
Alþýðubók Kiljansl — Ef »Fræði
Strauma« hin minni þættu »þurmeti«
fyrir unglinga, mætti sækja »viðbitið«
í svæsnustu kaflana í »Vefaranum
mikla« og í klúryrðustu kynferðis-
málabækurnar nýju. Ætli það mætti
ekki kalla það einstaklega »frjáls-
]yndan« fermingarundirbúning, ef ný-
guðfræðisprestur tæki þann sið upp?
Varla mundi unglingum í neðri
bekkjum Mentaskólans leiðast á
meðan t. d. trúmálakennari þeirra
hlýddi þeim yfir slíkan lestur.
Ætli enginn fáist til að tala með
því á næsta kirkjumálafundi í Borg-
arnesi?
En óhætt er að segja þessum 34,
og öllum þeim annarsstaðar, sem
eru þeim sammála, að þeir eru æði
margir enn á landi voru, sem trú
og þrek eiga til að vera með þess-
um eina, sem einurð átti til að greiða
atkvæði gegn þessari fjarstæðu á
fundinum. — Var það leikmaður eða
prestur? — Og það fara að koma
brestir í þjóðkirkjubygginguna alla
áður en trúarjátningunni postullegn
er varpað á dyr, og meira að segja
alveg óvíst um launahœkkunina. —
Kristnir menn og konurl Látum
þessa árás verða til þess, að vjer
játum trú vora, bæði nú um jóla-
hátíðina og endrarnær, með enn
'meiri alvöru en nokkru sinni fyrri,
og ihugum betur en áður skýringar
Lúthers.
Hvaðanæfa.
....—.... —jj
Helma.
Ólafur Ólafsson kristniboði skrif-
ar frá Shanghai i Kína 27. okt. s. 1.:
». . . Jeg er eini karlmaðurinn í norska
fylgdarliðinu og hefl þvi fyrir 3 konum
og 10 bðrnum að sjál — Alt útlit er fyrir
að hjer i landi fari nú aftur alt í bál og
brand. En vonandi rætist betur úr, en
margir spá. Kristniboðarnir halda sínu
verki áfram víðsvegar um landið og heflr
þeim fjölgað stórum í haust. —
Hingað komum við 24. þ. m. en leggj-
um af stað uppeftir íljótinu 29. — Viö
höfum mikinn farangur; hefi jeg keypt
hjer ýmsar nauðsynjavörur fyrir fjelaga
mina, sem inn í landi eru; t. d. matvörur
fyrir nálega 2 þús. krónur. — Hefi haft
mikið fyrir þvi. Og svo er jeg fjárhalds-
maður íöruneytisins. — Ferðalagið heflr
gengið prýðisvel hingað til«.
Krishnamurti, Indverjinn, sem
Guðspeki-vinir og Stjörnufjelagsmenn
hafa hingað til talið nýjan mannkyns-
fræðara, hefir lýst því yflr á Alþióða-
fundi Stjörnufjelagsmanna í Ommen i
Hollandi í ágúst siðastl., að Stjörnu-
tjelagsskapnum sje slitið. — Flutli
»Morguntilaðið« langa grein um þann
fund i haust eftir erlendu blaði, er
kemur vel heim við 2 nýprentaðar ræður
eftir Krishnamurti. Þar segir að hann
hafi eitt sinn sagt áheyrendum sinum
»að þeir ættu að hætta öllu bænahaldi«,
og »lyrir sjer væri enginn persónulegur
Guð til«. Stjörnufjelaginu skyldi slitið,
»af því að það skapi ekki andleg verð-
mæti, en hætt sje við að úr því verði
trúarflokkur, sem geti orðið þröskuldur
á vegi sannleikans«. — Trúarbragðafjelög
eru sannleikanum einskis virði. — Hann
sagði blátt áfram að hann áliti það hlægi-
legt að halda fjelagsskapnum áfram, þeg-
ar þess væri gætt, hve hann hefði verið
vanmegnugur í því, að breyta líferni fje-
lagsmanna«.