Heima er bezt - 01.10.1976, Blaðsíða 21

Heima er bezt - 01.10.1976, Blaðsíða 21
Þegar þau hjón hættu búskap á Birkinesi fluttu þau inn í Gimli og bjuggu þar unz þau fyrir elli sakir gerðust vistmenn á Elliheimilinu BETEL og þar dvel- ur Jósefbína eftir lát manns síns. í minningargrein um Jón látinn í Lögbergi-Heims- kringlu segir vinur hans: „Þcgar sú fregn barst að J. B. Johnson væri látinn, varð Ný-íslendingi að orði, „en hann lifði þó til að sjá aldarafmæli okkar“. í þeim orð- um var það fólgið, sem flestum er hann þekktu mundi finnast um hann, að fáir menn táknuðu eins skýrt og hann aðaleinkenni frumbyggjara Nýja-fslands; dugnað þeirra og þrautseigju, orðhcldni og stefnufestu, mannúð og tryggð við menningarerfðir .... og að með burtför slíkra manna liði frumbýlingsöldin undir lok“. Já, hundrað ára landnámssaga íslendinganna í Nýja- íslandi, sem og annarsstaðar í Vesturheimi, er liðin saga. Hún gefur okkur hér heima á Fróni tilefni til margskonar hugleiðinga. í raun og veru höfum við lít- inn gaum gefið lífsbaráttu þessara frænda okkar vest- anhafs, fyrr en þá á síðustu árum, með hinum miklu tengslum, sem skapast hafa með gagnkvæmum heim- sóknum. Og þá sjáum við að þarna hefir íslenzki stofn- inn staðið vel að verki, breytt ónumdu landi í Gósen- land og skapað sér lífskjör á við það, sem bezt gerist hjá fremstu menningarþjóðum. I raun og veru hafa hliðstæðir atburðir gerst á sama tíma hér heima, ís- lenzka þjóðin, beggja vegna hafsins, hefur sýnt hliðstæð- an dugnað og framkvæmdaþrá hér, sem þar. Og víst væri það verðugt verltefni fræðimanna okkar að rann- saka þessa hliðstæðu framþróun hjá íslenzka þjóðar- stofninum í svo ólíkum heimshlutum. íslenzkt landnám í Vesturheimi er að vísu liðið undir lok, eins og að ofan getur, þegar þessar gömlu ltempur eins og Jón á Birkinesi eru fallnar frá og önnur öld tek- ur við, en minningin um hetjulega baráttu þeirra fyrir lífinu á að lifa og að því eigum við að stuðla og það mun verða okkur hér heima hollt að sjá til þess, að sú saga verði sögð og að við getum dregið nokkurn lær- dóm þar af. Þeir áttu hina sömu forfeður og formæð- ur og við, ættin og erfðin hin sama þótt á ólíkum stöð- um þróist. BRÉFASKIPTI Albert Eiðsson, Eskihlíð 22, Reykjavík, óskar eftir bréfaslcipt- um við stúlkur á aldrinum 20—30 ára, með ósk um itiynd með fyrsta bréfi. Ólafur Sævar Elísson, Sælingsdal, Hvammshreppi, Dalasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stelpur á aldrinum 17—20 ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi. Bjartmann Elísson, Sælingsdal, Hvammshreppi, Dalasýslu, ósk- ar eftir bréfaskiptum við stúlkur á aldrinum 19—22 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. Erla Elísdóttir, Sælingsdal, Hvammshreppi, Dalasýslu, óskar eftir bréfaskiptum við stelpur eða stráka á aldrinum 17—20 ára. Æskilegt að mynd fylgi fyrsta bréfi. LILJA S. KRISTJÁNSDÓTTIR: £g bih þig Ég bið þig stjarna í bláum geim, er brosir svo hýrt við mér, brostu nú einnig blítt við þeim, sem burtu í fjarlægð er. Ég bið þig syf jaða, svarta ský, er sveimar við fjallatind, vatnsins bunu þér breyttu í og ber honum svalalind. Ég bið þig létti og ljúfi blær, sem leikur um vanga manns, andaðu klappi á kinnar tvær og kossi á varir hans. Ég bið þig sól, þú, sem birtu og yl breiðir á götu manns, þeim blíðasta geisla, er þitt bros á til beindu á veginn hans. Ég bið þig, Guð minn, að gæta hans vel, gef honum friðinn þinn. I heilaga föðurhönd ég fel hjartkæra vininn minn. Harða vorið 1906 .. . Framhald af'bls. 335.----------------------------- blómunum. Aldrei hlýrri og værari vorkvöldin en þenn- an sérstæða júnímánuð. Óhemju vatnaleysingar voru, því snjórinn var svo mikill eftir öll harðindin. Þá rann mikið vatn til sjávar hvern sólarhringinn. Stöðug veð- urblíða allan mánuðinn út, hlýindi og sólskinsblíða. Sláttur byrjaði um 20. júlí. Þá komið sæmilegt gras, þó ekki svo mikið gras sprottið sem best getur. En grasið var kjarnbetra en venjulega. Góð nýting á 'neyj- um um sumarið og féll seint. Hey svo góð um vetur- inn að með eindæmum var. Óhætt að gefa helmingi minna af þeim í innistöðu en venjulegt var. Skepnur allar vænar um haustið. Sérstaklega man ég eftir fall- egum fjallalömbum þetta haust. Þó að þetta vor og hálfur veturinn á undan sé það langharðneskjulegasta tíðarfar sem ég man eftir, þá er mér eins minnisstæð sú sérstæða blíða, sem var yfir júní- mánuð. Þá fannst manni „blómgróin björgin og sérhver baldjökull hlýr“. Heima er bezt 345

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.