Æskan

Árgangur

Æskan - 01.05.1966, Blaðsíða 40

Æskan - 01.05.1966, Blaðsíða 40
LÍTLU VELTIKARLARNIR 40. Þegar merkið var gefið, sveif flugvélin hægt niður og Robbi klifraði upp í og settist fyrir aftan flugmanninn. „Skilaðu kveðju til vinar þíns, hans Svarta Péturs, og biddu hann að færa jóla- sveininum kveðjur mínar, þegar hann hittir liann,“ hrópaði Veður- karlinn, um leið og vélin sveif á brott. Brátt var skrítna húsið og allir skýjabakkarnir langt að baki. „Þetta gekk vel,“ sagði flug- maðurinn. „Þú þarft ekki að hitta Svarta Pétur aftur. Það er lík- lega bezt að þú farir heim núna. Líttu niður, þarna hefurðu Hnetu- skóginn, beint undir okkur. Ég set þig úr hér.“ — 41. Vélin flaug eklti beint niður að Hnetuskógi. Hún sveif lágt yfir akra og runna o lenti að lokum á bak við tré eitt í skógarjaðrinum við bæinn. „Nær get ég ekki farið,“ sagði litli flugmaðurinn. „Það er ekki ætlunin, að venjulegt fólk sjái mig. Vertu blessaður, bangsi litli, og þakka þér fyrir lijálpina." „Þakka þér sömuleiðis," sagði Robbi. „Þetta var góð ferð.“ Hann hljóp heim og þar beið mamma hans eftir honum. Hún horfði kvíðin yfir garðshliðið. — 42. Það tók Robba nokkra stund að sannfæra mömmu sína um, að hann hefði verið með í spennandi ævintýri. Þegar hann sagði frá því nú, virtist það í meira lagi ótrúlegt, og hann fann, að mamma hans var ekki alveg sannfærð um, að hann segði satt. „Ertu viss um, að þig liafi ekki dreymt þetta?“ spurði hún. Hún þagnaði svo og leit út um gluggann. „Þú varst að tala um snjóstorm yfir skógin- um okkar. Líttu út. Sérðu!“ Þau settu á sig trefla og hlupu út bæði tvö. „Þarna er hann!“ kallaði Robbi. „Óvæntur snjóstormur yfir skóginum, og hann er langt í burtu, handan við hólana.“ LITLU VELTIKARLARNIR Wlnther |>rfh|6l fást I þrem s«ser0um ÖRNINN spítalastIg 8 SÍMI 14661 PÓSTHÓLF 671. HEIIUILIS- TRVGGING BRIJNA- TRYGGIN G GLER- TRYGGING BRUI\IABÓTAFÉl*C ÍSLAIMDS LAUGAVEGl 105 SÍMIs 24425 240

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.