Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 17
mamman hans. Hann stanzaði öðru hverju. Þess á milli
hljóp hann eins hratt og hann gat. Hann skipti um stefnu,
en það kom í sama stað niður. Engin mamma tók undir
við hann. Tístið hans varð hærra og vesældarlegra eftir
því, sem hann varð vonminni um að finna mömmu sína.
Loks var liann orðinn svo þreyttur, að hann var farinn
að gapa.
„Mamma, mamma!" kallaði hann átakanlega. Ekkert
svar.
Hann hljóp og hljóp. Hann ætlaði að hlaupa, þangað
til að hann kæmi til mömmu sinnar. Þá vissi hann ekki
fyrri til, en hann var í lausu lofti og kastaðist eitthvað
langt, langt niður. Hann reyndi að snúa sér við í loftinu,
en tókst ekki betur til en svo, að hann kom á hliðina í
mjúka mold. Hann hafði lent fram af barði. Um leið og
hann kom niður, ætlaði hann einmitt að fara að gá nið-
ur fyrir sig, en nefið stakkst þá langt niður í moldina.
Hann kippti því upp úr moldinni, stóð svo á fætur
og reyndi svo að hrista af sér moldina. Það tókst ekki vel.
Ósköp var þetta allt ömurlegt. Gulur litli tísti enn einu
sinni og kallaði á mömmu sína. Honum var sannarlega
grátur í huga. Og þarna stóð hann í moldarflaginu, þögull,
niðurlútur, vonsvikinn h'till hænuungi, sem hafði villzt
frá henni mömmu sinni, sem átti bara hann einan.
Skólafrí yfir sumartímann eru
misjöfn í hinum ýmsu löndum,
til dæmis hafa dönsk skóiabörn
frí frá 24. júní til 12. ágúst, í
Belgíu, Hollandi og Englandi
frá 1. júlí til 31. ágúst, í Sviss
frá 1. júlí til 4. sept., í Frakk-
landi frá 1. júlí til 15. sept., í
Þýzkalandi frá 3. júlí til 6. sept.
og á Italíu frá 1. júní til 15.
sept.
Meðan Gulur litli var í örvæntingarfullri leit að
mömmu sinni, var uppi fótur og fit á Karrastöðum.
Þegar Gunna litla hafði leitað hans um stund árang-
urslaust, og mamma hennar hafði ekki fundið neitt líeld-
ur, kölluðu þær á hitt heimilisfólkið. Innan stundar voru
allir farnir að leita. Vesalings Toppa gamla gaggaði óskap-
lega mikið og kallaði:
„Barnið mitt! Elsku barnið mitt! Hvar ertu? Ó, að ég
skyldi ekki gæta þín betur. Komdu, elsku unginn minn!
Komdu til mömmu, annars fer mamma að gráta!“ Þetta
og margt fleira fallegt kallaði hún, en það bar engan
árangur.
Alli, bróðir Gunnu litlu, sem var tveimur árum eldri
en hún, var oft vanur að stríða henni. Nú leitaði hann
grafalvarlegur livar sem honum datt í hug. Hann sýndi
mikinn áhuga á því að finna Gul litla. Hann hljóp fram
og aftur eins hratt og hann gat. Fullorðna fólkið fór sér
hægar og gáði inn í allar holur og misfellur, sem það taldi
að Gulur litli gæti falizt í.
Skyndilega hrópaði Alli hátt og hvellt og kallaði:
„Gunrial Gunna! Ég fann hann! Ég er búinn að finna
Gul litla fyrir þig! Komdu!“
Gunna rann á hljóðið. Og þarna kom Alli fyrir neðan
Lækjarhólinn og hann hélt á Gul litla ósköp gætilega.
Þegar Gunna litla kom til þeirra, tók hún við Gul litla,
en teygði sig svo upp til Alla og kyssti hann fyrir að finna
litla vininn sinn.
Allir á heimilinu glöddust yfir því, að Gulur litli skyldi
finnast lieill á liúfi. En enginn gladdist þó eins mikið
og mamma hans. Fagnaðargagg hennar heyrðist langar
leiðir.
„Mikið þykir mér vænt um þig. En hvílíkur iögnuður
að fá þig aftur. Nú máttu aldrei aftur hlaupa svona frá
mér. Þú verður að fylgja mér eftir. En nú veitir þér ekki
af að fá þér lítil, góð korn. Ég skal vísa þér á þau, elsku
unginn minn.“
„Já, mamma, það er alveg hræðilegt að villast. Ég vil
aldrei, aldrei lenda í því aftur. Ég vissi ekki, að það væru
fleiri liænur í stóra heiminum en þú, svo ég hljóp og
hljóp á eftir hænu, sem var livít á litinn. En þú varst
einmitt búin að sýna mér liti, sem þú sagðir að væru
svartur, hvítur og blár. Svo sá ég, að þessi liæna, sem
hljóp á undan mér, var ekki eins svört og þú, heldur
talsvert hvít. Þá hætti ég að hlaupa á eftir henni. En það
var bara orðið of seint, því að þá sá ég þig ekki. Ég skal
gæta mín framvegis."
Gulur litli hamaðist við að tína kornin, sem mamma
hans gaf honum, en talaði við hana þess á milli. Þegar
hann var mettur, breiddi mamma hans úr sér og hann
skreið undir væng hennar. Fyrst tísti hann dálítið. Hann
var að segja mömmu sinni frá því, sem hann hafði séð.
En svo smá hljóðnaði tístið, þar til það hætti alveg og
Gulur litli var steinsofnaður.
s
NYJA framhaldssagan fyrir þau yngstu.