Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 32

Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 32
SPURNINGAR OG SVÖ R Cilla Black. UPPÁHALDSSÖNGKONAN MÍN Kæra Æska. Ég þakka þér fyrir allt skemmtilegt, sem þú hefur flutt mér. Nú langar mig a'ð biðja þig að birta mynd af uppáhaldssöngkonunni minni, en bún lieitir Cilla Black. Von- andi kannast þú við hana? Hjördís Ósk. Svar: Hér böfum við fundið mynd af Cillu Black. Hún er frá Liverpool eins og hinir SUMARSKÓLI Kæra Æska. Við erum hérna tvær 16 ára stúlkur, sem langar að spyrja þig, livert við eigum að snúa okkur ef okkur langar til að fara í sumarskóla í Sví- þjóð næsta sumar. Með fyrir- fram þökk, og þakklæti fyrir allt gamalt og gott. Gurrí og Dísa. frægu Bitlar, og er 21 árs göm- ul. Columbia-hljómplötufélagið gefur plötur hennar út, en þær liafa náð miklum vinsældum víða um heim, einkum þó í Englandi og Bandaríkjunum. Það var Paul McCartuey, sem uppgötvaði sönghæfileika Cillu. Mún býr nú i London og hefur nóg að gera við að syngja inn á plötur og á liljómleikum. í SVÍÞJÓÐ Svar: Bezt væri fyrir ykkur að skrifa til skrifstofu Norræna félagsins og fá þar allar upp- lýsingar. Utanáskriftin er: Nor- ræna félagið, Hafnarstræti 15, Reykjavík. LEIKSKOLARNIR f REYKJAVfK Kæra Æska. Ég er búin að kaupa þig i nærri 3 ár, og ég þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Og nú ætla ég að spyrja þig nokkurra spurninga varð- andi áhugamál mitt, sem er og verður leiklist. 1. Hvaða leik- listarskólar eru nú starfandi í Reykjavík? 2. Hver eru inn- tökuskilyrðin? 3. Hver cr lág- marksaldurinn? 4. Hvað kostar að vera i leiklistarskóla yfir ár- ið? 5. Mega menn vera feitir eða þurfa þeir allir að vera grannir? -— Svaraðu mér eins fljótt og þú getur. •— Kveðja. Palli Jóns. Svar: 1. Á síðastliðnum vetri störfuðu tveir leikskólar í Reykjavík: Leikskóli Þjóðleik- hússins og Leikskóli Leikfélags Reykjavíkur. 2. Að umsækjend- ur liafi lokið gagnfræðaprófi eða sambærilegri menntun. Prófskírteini, læknisvottorð, ásamt meðmælum frá leiklist- arkennara, væri bezt að senda með umsókn. 3. Að nemendur séu orðnir 17 ára að aldri. 4. Námstími er 3 ár, 2—3 tímar á dag, og geta nemendur stundað aðra vinnu með skólanum. 6. Ekki eru sett nein skilyrði fyrir þvi, livort nemendur séu grann- ir eða feitir. Að sögn John Lennons ætla Tbe Beatles að leika í kvik- mynd. Segjast þeir ekki ætla að leika eftir bandriti né heldur hafa leikstjóra. — Við ætlum að leika okkur sjálfa — ekki sem liópur, heldur sem einstakl- ingar — og kvikmyndin verður bara til af sjálfu sér eins og þegar við erum að syngja inn á hljómplötu, sagði Lennon. VINSÆLT HLJÓÐFÆRI LEIKARI Kæra Æska. Marlon Brando er uppáhaldsleikarinn minn, og þess vegna langar mig að spyrja þig um eftirfarandi: 1. Hvenær er liann fæddur? 2. Hvert cr bægt að skrifa til bans? Lína. Svar: Marlon Brando er fædd- ur i Nebraska 3. april 1924. Fyrsta blutverk í kvikmynd lék liann árið 1950. Fyrir leik sinn i kvikmyndinni „Á eyrinni" hlaut liann hin frægu Oscars- verðlaun. Síðasta hlutverk hans í kvikmynd var 1 mynd Charlie Chaplins, „Greifynjan frá Hong Kong“, en þar er mótleikari bans Sophia Loren. Hægt er að skrifa til hans á eftirfarandi heimilisfang: c/o 20th Century- Fox, 10301 W. Pico, Los Angeles, California, U.S.A. Kæra Æska. Við eru nokkrir strákar að liugsa um verð á hljóðfærum. Okkur langarmjög til að vita, hvað liið vinsæla hljóðfæri saxófónn muni kosta. Bræður. Svar: Góð tegund af saxófóni mun kosta um 24 þúsund. Bezt er fyrir ykkur að skrifa til liljóðfæraverzlunar Poul Bern- burgs, Vitastíg 10, Reykjavík, sem mun gefa ykkur upp allar upplýsingar um verð og annað á bvaða hljóðfæri, sem þi® óskið. 392

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.