Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 30

Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 30
SPURNINGAR OG SVÖR Kæra Æska. Ég þakka þér allan þinn fróðleik og skemmtun. Ég hef mikinn áhuga á sjómennsku og þess vegna langar mig að biðja þig að segja mér eitthvað um sögu togaraútgerðarinnar hér á landi. Ég er 11 ára gamall og hef ákveðið að ganga í Stýrimannaskólann, þegar ég hef aldur til. Helgi. Coot, fyrsti togarinn, sem keyptur var til Islands. Svar: Við þökkum Helga fyr- ir bréfið, og munum i fáum dráttum reyna að fræða hann um fyrstu ár togaraútgerðar- innar hér við land. A níunda tug nítjándu aldar liófu Englendingar botnvörpu- veiðar á gufuskipum. Á þessum nýju skipum sinum sóttu þeir í æ rikara mæli á íslenzk fiski- mið. Hin gömlu fiskiskip sín, kútterana, seldu þeir öðrum fiskveiðijijóðum. Fjöldi af þess- um gömlu skútum var keyptur til landsins á árunum 1890 til 1905. Fyrsta tilraun iil botn- vörpuútgerðar, sem íslending- ar átlu blutdeild að ásamt út- lendingum, var hin svokallaða Vídalínsútgerð um síðustu alda- mót og mistókst tilraunin. Fyrsti togarinn var keyptur til landsins árið 1905, „Coot“ frá Grimsby, gainalt og Jítið skip, 150 smálestir brúttó. Stóð Ein- ai i'orgilsson í Hafnarfirði og fleiri fyrir kaupunum og var skipið gert út þaðan. Útgerð togarans gekk sæmilega, en skipið strandaði nokkrum árum síðar við Keilisnes. Þrem mán- uðum siðar kom annar togari til Reykjavikur, „Sea Gull“. For- ustu um kaupin lntfði bænda- höfðinginn Þorvaldur Bjarna- son á Þorvaldseyri. Skipið var rautt að lit og hlaut nafnið „Fjósarauður" manna á milli, vegna litarins og eigandans. Skipið var gamalt og lítið, 126 smálestir að stærð. Vélar skips- ins voru í ólagi og engin að- staða til nauðsynlegrar viðgerð- ar í landi. Varð cigandi togar- ans fyrir miklu fjárhagslegu tjóni á útgerðinni. Fy'rsti nýi togarinn, sem byggður var fyr- ir íslendinga var „Jón forseti", 233 smálestir að stærð, og eig- andi var Alliance b.f. í Reykja- vík, sem stofnað var árið 1905, og starfaði l>að félag að íogara- útgerð þar til á siðastliðnu ári. Næsti togari, sem íslendingar key'ptu frá Englandi árið 1907, var „Marz“, eign íslandsfélags- ins h.f. Aðalforgöngumenn Jiess félags voru Jes Zimsen, kaup- maður, og Hjalti Jónsson, skip- stjóri. í kjölfar þessara nýju togara komu mörg ný skip, og stuðlaði binn nýi hlutafjár- banki, fslandsbanki, mjög að eflingu togaraútgerðarinnar, en bankinn hafði hafið starfsemi 1904. Með togaraútgerðinni var véltækni nútímans fyrst tekin í lijónustu íslenzkra atvinnuvega svo nokkuð kvæði að. Árið 1915 voru gerðir út frá Reykjavik 17 togarar. Togaraútgerðin kallaði á nýjar framkvæmdir og þjón- ustu, jók bún atvinnu og verzl- un, einkum i aðalútgerðarbæj- unum, Reykjavik og Hafnar- firði. Er biklaust óhætt að þakka þessari nýju útgerð, að ráðizt var í liafnargerðina i Reykjavik á árunum 1913 til 1916. En bin mikla bafnargerð í Reykjavík hefur orðið lyfti- stöng fyrir Reykjavíkurborg og landið í heild. Togaraútgerðin varð fyrir miklu áfalli 1917, þegar banda- menn kröfðust þess, að 10 tog- arar yrðu seldir Frökkum, iil varnar gegn kafbátahættunni, sem þá var í algleymingi. I stríðslok 1918 voru aðeins 9 tog- arar í eigu íslendinga. Á árun- um 1919 til 1927 voru keyptir til landsins 44 togarar. Á árunum 1928 var keyptur einn togari á strandstað, 1929 kom einn nýr togari til landsins og annar Jón forseti, fyrsti togarinn, sem smíðaður var fyrir íslendinga. • ^ocf&rcuXtcj&rÖ á Zlólcmdl* 390

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.