Æskan - 01.10.1967, Blaðsíða 31
Myndin hér að ofan er tekin á Skansinum í
Vestmannaeyjum og sést Elliðaey til vinstri
en Bjarnarey nær og til hægri.
1930. Siðan kom enginn nýr
togari til Lnndsins fyrr en 17.
febrúar 1947. Tveir togarar, sem
verið höfðu í eigu útlendinga,
voru keyptir til landsins 1937 og
1939.
í siðari heimsstyrjöldinni
sigldu íslenzku togararnir með
fisk til Bretlands, cn þær sigl-
ingar höfðu í för með sér mikla
liættu fyrir áliafnir og skip. J
þeirri styrjöld fórust 10 js-
lenzk skip. Með þessum skipum
fórust 163 íslcndingar, auk
]>ess sem 5 sjómenn biðu bana,
er kafbátur réðst með skothríð
á islenzkan línuveiðara. Árið
1945—1948 sömdu íslendingar
um smiði á 42 togskipum, og
hlutu þessi skip samheitið „ný-
sköpunartogarar". t árslok 1959
vóru togararnir 49 talsins, cn
nú munu ekki vera í rekstri
nema um 20 skip. Flest skipin
munu nú talin of dýr í rekstri
og ófullkomin til að standast
samkeppni nýrra erlendra
skipa, sem keppa um veiðarnar
liér við land. En stærstu tog-
ararnir liafa á síðari árum
stundað veiðar á fjarlægum
miðum og fiskað vcl. Nú er i
undirbúningi að fslendingar
endurnýi togaraflota sinn og
hafa menn liug á að kaupa nú
á næstu timum nokkra nýja
skuttogara, en þau skip eru tal-
in þau fullkomnustu í lieimi i
dag til slikra veiða.
391