Æskan - 01.05.1969, Page 41
Hver drengur og stúlka sem
er getur eignast dálitla garð-
holu. Það gerir ekkert til, þótt
hún sé lítil, því betra er að hirða
um hana. Því meiri vinna, sem
'ögð er í garðyrkjuna, því meira
gefur garðurinn af sér. Það,
sem þið verðið fyrst og fremst
að hugsa um, er að girða land
ykkar. Bæði til þess að þið vit-
ið, hve langt jarðir ykkar ná og
eins til þess að ekki verði á
Þær ráðizt af spellvirkjum
gróðursins, svo sem alls konar
ðýrum. Þú stingur upp garðinn
hieð skóflu. Bezt er að fylgja
vissum reglum:
1. Grafðu góðan skurð fyrir
arfa og rusl.
2. Stingdu rekunni langt nið-
ur, en mundu að taka ekki of
mikið á hana í einu.
3. Molaðu jafnharðan stærstu
moldarhnausana.
Það er mjög þýðingarmikið
atriði, að stungið sé vel upp, og
má ekki kasta til þess höndum.
Það er nefnilega gert til að losa
moldina fyrir rætur jurtanna.
Þegar þú ert þúinn að grafa
Vcrtn vandvirkur.
svo sem 50 cm verður þú að
fara yfir moldina með hrífu,
eins langt niður og þú getur, og
raka þurt grjóti og illgresi og er
því öllu fleygt í skurðinn.
Þegar þú ert búinn að fara
svona yfir moldina, á hún að
vera eins fín og púðursykur nið-
ur á tíu cm dýpi.
Því næst ferðu að skjpa nið-
ur í garðinn. Þú notar snæris-
spotta til þess að mæla fyrir
götunum. Efsta moldarlag-
inu er kastað út yfir beðin og
jafnað með hrífu. í göturnar
stráirðu sandi eða möl. Hafðu
göturnar fáar og mjóar, svo
ekki fari of mikið af moldinni
til einskis.
Hvað ætlarðu að rækta í
garðinum þínum? Því verðurðu
sjálfur að skera úr, en við ætl-
um að gefa þér nokkur góð ráð,
og þau eru að gá að þvl að
rækta ekki eða sá of þétt.
Á vræpokunum stendur oft-
ast nær fyrirsögn um hve þétt
má sá hverri tegund fyrir sig.
En þú verður líka að gæta þess,
að sá ekki of djúpt. Gert er
ráð fyrir að fræið sé þakið jarð-
lagi, sem ekki er þykkara en
fræið sjálft. Gæta verður hinnar
mestu nákvæmni með gróður-
setninguna. Fyrst er borað fyr-
ir holu, verður hún að vera svo
djúp, að ræturnar gangi beint
niður í hana, en þær brotni ekki,
eins og sést á fyrri myndinni.
(Bezt er að nota sams konar
áhöld og sýnt er á myndinni).
Þegar búið er að stinga plönt-
unni niður I holuna sóparðu
moldinni að henni með skófl-
unni og þrýstir moldinni yfir ræt-
urnar. Gættu þess, að kímblöð-
in fari ekki undir moldina, þá
rotna þau. Sáðu aldrei fyrr en
farið er að hlýna í veðri, því
annars kemur sáningin ekki að
gagni. Mundu að vökva beðin
vel og hreinsa arfann jafn-
óðum og hann kemur upp.
Og svo óskum við að vel
megi vaxa og þroskast í garð-
inum þínum í sumar og gaman
væri að heyra frá þér með
haustinu um starfið í garðinum
og helzt að senda okkur myndir
af garðinum og uppskerunni.
*-■— \
in 7 r r /á 7 / Úr kvikmyndinni „Stúlkan með regnhlífarnar“
hp skal bioa þin Sungið af Hauki Morthens
0 1 á hljómplötunni „Með beztu kveðjum“
Komdu er vorar, þegar sólin i dalnum shin, Komdu aftur til min, ég skal bíða þin
þegar vahna aftur óska-blómin min. þúsund daga og ncetur, ef þú verður min,
Komdu er rnoldin angar, vekur allt sem grcer, þar til ást þín vaknar og i faðmi mér
lífiÖ fagnandi af hamingju slccr. lif þitt bergmálar við hjarta mér.
Allt þaö bezta er á ég, skal ég gefa þér, Komdu er sólin skin.
allt ást sem brennur heitt i lijarta mér.
Gleði svo að Ijómi fögru augun þín, Lalala . . .
tryggð, sem aldrei að eilífu dvín.
Ég skal bíða þin
Og timinn liður, klukkan tifar, hjartað slœr. þar til ást þín vaknar og í faðmi mér
Égfinn að stundin okkar fcerist óðum ncer, lif þitt bergmálar í hjarta mér.
að ósk mín rcetist heitust, þegar hvilir þú
aftur í faðmi mér. Hjördis Morthens.
\
277