Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 45
SPURNINGAR OG SVÖR
Svar til Freyju og Björns: Iírian er.svo algengur fugl hér,
hvar seni er á landinu, að það er ótrúlegt, að til sé svo ófróð
mannvera með fullu viti, sem eigi beri kennsl á „liinn gargandi
fugl kríuna“. Krian segir ælið til nafns síns, hvar sem hún fer,
svo að eltki er um að villast, ])ví að hún er einhver hinn skemmti-
legasti skapvargur, sem til er í fuglaríki okkar. Hún er einnig
hin ásjálegasta að iit og vaxtarlagi, — livítgrá og hvit á lit, með
ianga og mjóa vængi og ennþá lengra, klofið stél, með svarta
kollhettu á höfði, sem nær framan frá nefrótum aftur á hnakk-
ann, niður undir liáls. Nef og fætur eru hárauðir. Kroppurinn er
svo lítill (þyngd um 110 g), að mönnum hefur orðið að orði, að
krian væri lítið annað en fiðrið og vargshátturinn. En hún er
l>ó hæði fallegur og frekar skemmtilegur fiðurhnoðri, þrátt fyrir
l>að að eigi verði um hana sagt, að liún sé raddfögur. Krian er
með flugfimustu fuglum, sem hér getur, iðandi af fjöri og ærsl-
um, 0g flestum mönnum finnst tómlegra á eftir, þegar krian fer
kéðau að liðnu sumri. Krían er í rauninni hánorrænn fugl. Ifún
á sumarheimkynni norður um öll norðurhéimskautslöndin, næst-
um eins langt norður og menn hafa komizt lengst. Krian er alls
staðar l'arfugl, og hún er gríðarlega langförul. Það er sannað,
að hennar liafi orðið vart, þegar vetur er hér norður frá, sunnar-
lega við Ciiile-strendur og við suðurodda Afríku og austur við
Nýja-Sjáland. Þá hafa margir það fyrir satt, að hún sé algeng
í Suður-íshafinu, suður af ströndum meginlandanna þar. Krian
er félagslynd, þær eru ]>ví nær ætíð fleiri saman, hvar sem hún
er eða fer. Hún verpir helzt i þéttum vörpum, þar sem skilyrði
eru til þcss, t. d. nóg æti, nærtækt handa ungunum og öryggi
fyrir vargi. En bezta öryggið er lienni félagslyndið, og það er
ekki heigluin lient að fara að lienni, þar sem hún er í þéttum
vörpum. Hún heldur og sínum hlut fyrir flestum vargfugli, með-
an hún liggur á eggjunum, en henni gengur oft verr að gæta ung-
anna. En þá er lika oftast nær fastara sótt á, því að flestum
óvinum hennar þykja ungarnir betri lil átu en eggin. Krían er
ekki sérstaklega vandfýsin með varpstaði, ef þeir eru aðeins
nálægt sjó eða vötnum, við ár eða lón. Helzt er hún þó við árósa,
i ósliólmum, á töngum og annesjum við sjó eða vötn. Varptimi
kríunnar liefst sjaldan fyrr en í júnibyrjun. Krian verpir 2—3
eggjum og fer það bæði eftir árferði og aldri. Útungunartiminn
er um 3 vikur (tæpar þó), og hjálpast bæði hjónin við það starf
og við uppeldi unganna. Ungarnir fara úr hreiðrunum, áður en
þeir eru vel þurrir, og eru slungnir í því að dyljast í grasi eða
mosa eða á milli steina, þvi að þeir eru fyrst nær einlitir, mó-
grádröfnóttir og mjög samlitir flestu umhverfi. Þeir eru mjög
viðkvæmir gegn kulda og bleytu framan af og farast því unn-
vörpum, ef tíð er stirð og köld. Er það yfirleitt sjaldgæt't, ef
kríulijónum lekst að koma fleiri cn einum unga á legg.
James Drury.
Svar til Júliusar: Sjónvarps-
Pættirnir „Virginiumaðurinn",
St>m islenzka sjónvarpið hcfur
Verið að sýna, eru eftir skáld-
St>gu Owens Wisters, en þetta
Verk hans kom fyrst út árið
ii>02 og liefur selzt til ]>essa i
Virginíumaðurinn
yfir 11 milljónum eintaka.
Þættir þcssir liafa verið sýnd-
ir víða um heim og hlotið mik-
ið lof. Aðalhlutverkin eru leik-
in af James Drury, sem lcikur
sjálfan Virginiumanninn, Lee
Cobli, sem leikur dómarann,
Doug McClure, sem leikur
Trampas vinnumann, og Ro-
bertu Sliore, er leikur dóttur
dómarans. Auk ]>essara föstu
leikara, sem koma fram í
hverjum þætti, leika i einstök-
um þáttum margar lieimsfræg-
ar stjörnur, svo sem Bette
Davis, Frank Sinatra, Lee Mar-
vin og George C. Scott. James
Drury hefur fengið mikið lof
fyrir iilutverk sitt. Hann er
fæddur í New York og fór
ungur í leiklistarskóla. Fyrsta
lilutverk sitt lék hann hjá
kvikmyndafélaginu Metro-
Goldwyn-Mayer í Hollywood
árið 1954, en náði sér ekki á
strik fyrr en með hlutverki
sínu í þessum þáttum. Lee J.
Cobl) er gamalkunnur leikari
og hefur oft sýnt afbragðs leik
í mörgum kvikmyndum. Doug
McClure er mjög ungur leikari
en liefur náð miklum vinsæld-
Lee J. Cobb.
Doug McClure.
um fyrir lilulverk sitt, Tram-
pas vinnumann, og Roberta
Sliore, sem leikur dóttur dóm-
arans, er mjög ung leikkona,
en henni er spáð miklum
frama.
281