Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 47

Æskan - 01.05.1969, Qupperneq 47
SPURNINGAR OG SVÖR Svar til Halldóru: Julie Andrews kom fyrst fram á leiksviöi 12 ára gömul. Hún lék í söngleikriti, er liét „Starlight Roof“ og hámark leiksins var litli söngurinn hennar Julie, „Mignon“. Þeg- ar Julie iiyrjaði að syngja, varð dauðakyrrt í salnum, en jiegar seinustu tónarnir dóu út, liófust fagnaðarlæti áheyrenda. Þetta endurtók sig kvöld eftir kvöld i margar vikur. Þegar Julie varð 18 ára, liafði hún leikið i fjölmörgum lát- bragðs- og söngleikjum og liafði meðal annars verið kynnt fyrir hrezku konungsfjölskyldunni. Hvin var þá þegar þekkt og vin- S*1 listakona í London, en engan og allra sízt hana sjálfa liafði úreymt um, að nokkrum árum seinna yrði liún heimsþekkt stjarna. Hinn raunverulegi frægðarferill hennar liófst með þvi, !>ð liún fékk tilboð frá Bandaríkjunum um að leika i „Boy I'riend“. Julie afþakkaði fyrst í stað, þvi hinn bandaríski leik- stjóri setti það skiiyrði, að liún skrifaði undir tveggja ára samn- Ing. Julie, sem aldrei liafði ferðast utan Englands og aldrei verið 1 hurtu frá foreldrum sínum, gat ekki liugsað sér að vera að heiman nema í mesta lagi eitt ár. Að síðustu féllust þeir amerísku á eins árs samning. Það var þessum samningi að þakka, að Julie fékk lifs síus gullna tækifæri, því að liún fékk hlutverk Elízu i „My Fair Lady“. Þar með fékk hún sitt stærsta leiksviðslilutverk, en einn- ig sín mestu kvikmyndavonbrigði. í um það bil fjögur ár lék Julie hlutverk Elízu Doolittle til skiptis á Broadway og i West End i London. Þegar svo kvikmynda átti leikritið, biðu allir -— og einnig Julie — eftir að hún fengi hlutverkið á hvíta tjaldinu. En Jack Warner, sem gera átti kvikmyndina, liafði annað í huga. Frá lians sjónarmiði séð var Julie ekki nógu „stórt númer". En það var Audrey Hepburn aftur á móti. Að visu gat liún ekki sungið, en hugvitssemi leikstjórans gat bjargað því við. Julie Andrews varð mjög vonsvikin, þegar fram lijá henui var gengið með aðallilutverkið. Elíza var orðin eins og tvíburasystir liennar, og hún vildi svo gjarnan fara með hlutverkið i kvik- mynd. Hún hefði orðið græn af öfund, ef einhver önnur en Au- drey Hepburn, sem liún dáðist mjög að, hefði fengið þetta eftir- sótta hlutverk. Ef til vill varð ]>essi ósigur hennar til þess, að Julie náði eins langt og raun ber vitni í leik sinum sem Mary Poppins, hlutverk, sem Walt Disney bauð henni eftir vonbrigðin með Jack Warner. Fyrir leik sinn i þeirri mynd tók Julie á móti Óskarsverðlaunum árið 1965, og þar með hafði hún sigrað keppinaut sinn, Audrey Hepburn. En með leik sínum i kvikmyndinni Tónaflóð (Sound of Music) liefur frami hennar náð liæst. Nú hefur liún laun á borð við Elizabetli Taylor og Barbra Streisand, sem eru liæst launuðu stjörnurnar um þessar mundir. Julie Andrews liefur nef, sem oft er likt við skíðabrekku, skarp- legt andlit og glæsilega fótleggi. Hún notar lítið eitt af andlits- púðri, engan varalit, en mikla augnskugga, sem fá dökkblá augun til að njóta sin til fulls. Hún er kvenleg og lilédræg, en veit aug- ijóslega, hvað liún vill. Aldur hennar er 33 ár. S V Ö R Svör við nokkrum spurning- Uln úr bréfum til Æskunnar: Inga: Bréfaskóli SÍS og ASÍ er 1 Sambandshúsinu í Reykja- v*k. Ekkert aldurstakmark er i l'cim skóla. Mismunandi liá Bjöid eru fyrir hverja náms- Brein eftir þvi hver liún er. pPPlýsingar um kennslu fyr- lr bær stúlkur, sem ætla sér kenna handavinnu, t. d. i barnaskólum, færðu beztar n'eð því móti að skrifa eftir læiin líi Kennaraskóla íslands 1 Reykjavik. Inntökuskilyrði eru vist landspróf og námið tckur 3 eða 4 vetur. Jún: Á hls. 281 birtir Æskan niynd af James Drury, sem leikur Virginíumanninn í sjón- varpinu. Sveitastelpa, 13 ára: Það þarf stúdentspróf lil þess að komast í dýralæknisnám. — Reglurnar um borðtennis liöf- um við ekki við liöndina, en værum þakklátir, ef einliver lesandi gæti sent blaðinu þær. „Lesandi": Já,það fástbóka- stoðir úr málmi, sem hægt er að nota lil þess að halda að bólium í liansahillum, þó að hækurnar fylli ckki liilluna ncma að liálfu. Egill í Hveragerði: Gifs er hvítt duft. Ef það er blandað mcð vatni, harðnar það mjög fljótt. Sé notuð mjólk i stað vatns, liarðnar það ekki eins fljótt. Gifsduft fæst í flestum lyfjabúðum. Rósa og Björg: Skrifið bara beint til skólans og biðjið um siðustu skólaskýrsluna. Kristín: Um þelta er ekki gott að segja, en hér i llvik eru tveir leiklistarskólar og mundi vera lieppilegast að byrja í öðruin livorum þeirra og sjá svo hvað setur. Einar og Sigmundur: Þið skulið skrifa lil Vélhjóla- klúbbsins Eldingar, c/o Æsliu- lýðsráð Reykjavíkur, Frí- kirkjuvegi 11. M. V. S.: Ef til vill getur Æskan birt grein um stór- meistarann seinna, en einnig getur þú farið á bókasafnið og fengið nokkra árganga af Skákblaðinu lánaða á lestrar- sal. Þar er oft sagt frá Frið- riki Ólafssyni og skákum hans. 13 ára stúlka á Akureyri: Jú, ef til vill kemur grein um þetta seinna i þættinum Hvað viltu verða?, en lika gætir þú skrifað eftir upplýsingum frá Handíðaskólanum, en hann er i Skipholli 1, Reykjavik. Dóra: Hermau Hermits (Pet- er Noone) kvæntist 5. nóvemb- er 1968 Mireille Strasser, 22 ára franskri stúlku. Svar til Gumma: Grænlend- ingar liafa ekki ennþá komið sér upp sjónvarpi, en nú er unnið að undirbúningi þess, og vonir standa til, að það taki til starfa árið 1970, en útvarp hefur verið starfandi á Grænlandi síðustu 10 árin. íbúatala Grænlands mun nú vera um 40 þúsund. 283

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.