Æskan - 01.10.1971, Qupperneq 55
Guðmundur Gíslason er án efa bezti
sundmaður okkar íslendinga. Hann hóf
sundþjálfun mjög ungur og náði brátt frá-
bærum árangri. Hann hefur sett 150 met
■ sundi og oft keppt fyrir Islands hönd á
erlendum vettvangi, m.a. tvívegis á Ólympíu-
leikunum. Nú fyrir skömmu hlaut hann
tvenn verðlaun á Norðurlandameistaramót-
inu i sundi, sem haldið var í Reykjavík.
I landskeppni íslendinga og Dana sigr-
aði hann í þremur greinum, og í lands-
keppni Islendinga og íra í sumar í fjórum
greinum.
Guðmundur er fyrirmyndar íþróttamaður
á mörgum sviðum. Hann er alger reglu-
maður á vin og tóbak, vekur jafnan at-
hygli fyrir prúða og drengilega framkomu,
og hann tekur íþrótt sína mjög alvarlega,
því að hann hefur í s.l. 15 ár æft sund
daglega og stundum oftar en einu sinni
á dag.
Guðmundur Gíslason.
Kúluvarp:
Kristín Magnúsdóttir HSH 7.09
Erna Valgeirsdóttir USÚ 5.37
60 m hlaup: 12 ára drengir borgrímur Þráinsson HSH 8.8
Stefán Óskarsson ÍA 8.9
Jón Gíslason UMSB 9.2
Jón Gunnar Björnsson KR 9.4
Langstökk:
Trausti Sveinsson KR 4.28
Sigurþór Þórólfsson HSH 3.93
EHert Ingvarsson KR 3.86
Gylfi Orrason ÍR 3.85
Kúluvarp:
Friðrik Eysteinsson HSH 8.42
Stefán Halldórsson UMSK 8.41
Gunnar Þórarnarson USÚ 7.48
bórður Jónsson UMSB 7.05
500 m hlaup:
Jón Gunnar Björnsson KR 1 :28.5
Trausti Sveinsson KR 1:29.4
Jón Gíslason UMSB 1:30.5
Stefán Óskarsson ÍA 1:30.8
Stjórn Frjálsíþróttasambands fslands
valdi þau Ásu Halldórsdóttur, Súsönnu
Torfadóttur, Guðjón Guðmundsson og
Trausta Sveinsson til að kepþa á Andrésar-
leikunum í Noregi, en þangað fóru þau í
boði Frjálsíþróttasamþands Noregs.
VEIZTU ÞAÐ?
Hvers vegna svitna menn af áreynsiu?
Vegna þess að varmi myndast við starf
vöðvanna og líkamshitinn eykst. Líkam-
inn svitnar þá til þess að draga úr þess-
um hita.
Hvaða gagn gerir svitinn líkamanum?
Svitinn kemur í veg fyrir að líkamshitinn
hækki úr hófi. Menn þola mikinn hita
miklu betur, ef loftið er þurrt, heldur en
þegar það er rakt. Þess vegna leitar
fólk í heitum löndum frá sjónum upp til
fjalla í miklum hitum, enda þótt hita-
stigið kunni að vera hærra þar upþi.
Hvers vegna þornar þvottur fyrr i
vindi en logni? Rakinn í þvottinum guf-
ar upp þeim mun örar sem hitinn er
meiri. Sé logn, verður það loft, sem
næst er þvottinum, mettað eða allt að
því mettað af vatnsgufu, og þornar þá
þvotturinn mjög hægt. En sé vindur,
berst rakinn, sem gufar upp, burt jafn-
harðan, og þornar þv.otturinn þá fljótar.
Ekki kveður þó mikið að þessu, ef loftið
er rakt.
Hvað er reykur? Reykur stafar af
ófullkomnum þruna og myndast af ýms-
um hálfbrenndum efnum, sótögnum og
fleiru. Ef brennslan væri fullkomin,
mundi sama og ekkert myndast annað
en ósýnilegar lofttegundir. Reykurinn er
mestur eftir að nýbúið er að kveikja
uþp, því að þá er hitinn ekki nægur og
bruninn því ófullkomnari en ella. En í
góðum tækjum er bruninn nærri full-
kominn, þegar hann er kominn vei í
gang, og þá kemur varla nokkur reykur.
Hvernig stendur á suðuhijóðinu? Allir
kannast við hljóðið, sem berst frá vatni,
þegar það nálgast suðu. Þannig stend-
ur á því, að vatnið hitnar fyrr niður við
botninn en nærri yfirborðinu. Gufuból-
urnar myndast við botninn og streyma
upp, en þegar þær koma í kaldari vatns-
lög, minnkar gufuþrýstingurinn við kóln-
unina: vatnið þrýstir bólunum saman. í
hvert skiþti, sem bóla þrýstist saman,
heyrist smávægilegur smellur, suðu-
hljóðið er samsett úr þessúm smellum.
Er unnt að sjóða vatn yfir eldi í
pappírspoka? Já, það er unnt, og því
betra sem pappírinn er þynnri, meðan
hann heldur vatninu. Pappírinn þarf að
hitna upp í um það bil 250 stig til þess
að hann sviðni, en vatnið inni í honum
sér um það, að hitastig hans komist
ekki að ráði upp fyrir 100 stig. Af sömu
ástæðu skemmast votar þurrkur ekki,
þótt þeim sé vafið utan um mjög heita
potta og önnur ílát, til þess að menn
geti tekið á þeim.
Öll efni, sem geta brunnið, eiga sér
ákveðið mark, ikveikjuhita, er þarf að
hita þau í, til þess að í þeim kviknl.
53