Æskan - 01.10.1971, Blaðsíða 69
Stjörnuspá
OKTÓBER:
ÞEIR, sem fæddir eru i þess-
um mánuði, eru ekki heilsteyptir
persónuleikar. Þeir eru oft nöld-
ursamir og gróðafíknir. Þeir eru
mjög stoltir, elska skemmtanir
og góðan félagsskap, en láta
slíkt þó aldrei bitna á pyngjunni.
Þetta á við bæði karla og kon-
ur.
NÓVEMBER:
ÞEIR, sem fæddir eru í þess-
um mánuði, eru mjög fallegir út-
lits og hreinlegir, elskulegir og
heilsuhraustir. Þeir eru gefnir
fyrir viðskipti, en eru alltaf að
tapa. Hins vegar missa þeir
seint móðinn á þessu sviði og
eru fljótir að koma undir sig
fótunum aftur eftir hvert tap.
Með einum kynflokki í Suður-
Afríku leyfist engum að halda
lengri ræður en svo, að hann
geti staðið á öðrum fæti á með-
an. — Og svo eru til hvítir
menn, sem líta niður á þetta
fólk og kalla það frumstætt og
óþroskað. Hugsum okkur hvilik
framför það væri, ef siðurinn
væri tekinn upp um gervallan
hinn svokallaða siðmenntaða
heim!
RÁÐNING Á GALDRI
í júlí-ágúst-blaði:
í lyfjabúðum er hægt að fá
smáglas með vökva, sem hcitir
Coltodium. Takið sykurmolann,
sem á að fljóta og dýfið lionum
niður i þcnnan vökva. Notið
t.d. frimerkjatöngina ykkar til
]>ess. -— Þegar molinn er orð-
inn ]>urr, flýtur liann ofan á
heitu kaffinu.
Jónsi var ekki nema fjögurra
ára gatnall, ]>egar mamma fór
með hann í kirkju i fyrsta
sinn. Hún liafði vaðið fjrir
ncðán sig og sagði honum áð-
ur, að það væri harðbannað að
tala í kirkjunni. Svo komu ]>au
þangað og allt gekk vel, þang-
að til prcsturinn steig í stól-
inn og hyrjaði ræðu sina. Þá
rauk Jónsi upp og kallaði:
— Uss, manni, það er liarð-
hannað að tala hér.
Ritföng öll er vandi að velja
vissulega mun ég telja
En þig ég gjarnan meðan man
minna vil á PELIKAN
67