Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 6

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 6
VESALINGS JONNI 1 stórum skógi langt, langt suður í löndum, þar sem loftið er hlýtt og rakt og næturnar niðadimmar, bjó eitt sinn apaköttur, sem hét Sallý. Hun klifraði í trjánum allan liðlangan daginn, sveiflaði sér léttilega frá tré til trés og af grein á grein, og kom aðeins sjaldan niður til jarðarinnar. Sallý átti ofurlítið hús, sem hún hafði fléttað saman úr greinum og laufi, í trjákrónu nokkurri og mest líktist stóru fuglshreiðri. Þar hélt hún kyrru fyrir á næturnar og í vondu veðri og leið á allan hátt vel. Blöð trésins mynduðu fallegt grænt þak yfir hreiðrinu, svo að hún sá aðeins ofurlitla rönd af himninum á milli þeirra. Eina nóttina eignaðist hún tvo litla apaketti. Hún var fjarska hreykin og glöð. „Hugsa sér, tveir ofurlitlir angar!“ sagði hún. „Ó, hvað það verður gaman að sýna þá! Engin af þeim apafrúm, sem ég þekki, hefur eignazt nema einn í einu.“ Hún skírði börnin sín Jonna og Tótu. Betri nöfn gat hún ekki fundið, þótt hún bryti mjög heilann um það. Og nú var Sallý fjarska hamingjusöm og leið eins vel í hreiðr- inu sínu og nokkrum apaketti getur liðið. En að fáum dögum liðnum veitti hún því athygli, að Jonni litli var ekki alveg eins og hann átti að vera. Það var eitthvað að öðrum handleggnum hans, — hann var svo skrítinn, eins og hann væri visinn. „O, jamm og jæja! Það er ekkert við þessu að geral" and- varpaði Sallý. „Hver og einn verður að taka því, sem að hönd- um ber.“ Hún gætti barna sinna fjarska vel og gerði gælur við þau, því að henni þótti innilega vænt um þau bæði. Þó hugsaði hún enn betur um Jonna. „Vesalingurinn litli,“ sagði hún. „Það er ekki víst, að honum gangi vel að hafa sig áfram í heiminum, íyrst hann er ekki eins og hinir.“ Og Sallý hafði rétt fyrir sér, — þvi miður. Heimurinn er nú enn ekki betri en það, að hann er vondur við þá sem eru ekki eins og hinir. Þegar krakkarnir voru orðnir svo stórir, að þeir gátu leikið sér upp á eigin spýtur, hófust erfiðleikarnir fyrir aumingja Jonna litla. Hinir apakettirnir í nágrenninu voru vondir við hann. Og Nonni litli, sem oftast var allan daginn hjá Sallý og börnum hennar, af því að hann hafði misst mömmu sína, var ekki heldur góður við hann. Bæði hann og Tóta stækkuðu nú óðum og urðu jafnframt kaldlynd. Þau léku sér aðeins við Jonna, þegar enginn sá til þeirra. En þegar þau voru úti á ferðalagi og mættu kunn- ugum, létust þau ekki þekkja hann. Það var alveg eins og þau skömmuðust sín fyrir hann. Öðru hverju sögðu þau við hann: „En hvað þú hefur skrítinn handlegg, Jonni! Llttu bara á okkur, —- þannig eiga allir apakettir að vera.“ Og svo gerðu þau gys að honum og gáfu honum langt nef. Jonnl hafði gaman af að leika sér eins og allir apakettir, og langaði fjarska mikið til að vera með þeim hinum. En dag einn, þegar óhræsishátturinn og stríðnin höfðu gengið alltof langt, hljóp hann heim til mömmu sinnar og sagði: jnriið og „Mamma, má ég ekki vera hér uppi hjá þér?“ Sallý var önnum kafin við að búa til nýja dýnu í sagði: „Æ, nei, vertu nú vænn og leiktu þér með hinum kr0 um, það er miklu betra fyrir þig, vinur minn. Þá hef ®9 vinnufrið!" mér“ „Já, en krakkarnir eru svo vondir við mig og gera gys a® s. sagði Jonni. Hann gat tæpast talað, og það voru tár í aug®111 Sallý horfði sorgbitin til hans. Hún hætti að vinna °9 Jonna í fang sitt. „Vesalingurinn litli," sagði hún. „Við skulum fara tvo sarnan ofurlítið ferðalag." Og síðan héldu Sallý og Jonni inn í s kóg'nn stóra. 09 Sallý hélt á Jonna litla og þrýsti honum að brjósti s'nU’jjtið Jonni hélt fast um hálsinn á henni. Jonni kjökraði enn Þa eitt, en mamma hans huggaði hann eftir beztu getu. stór.“ „Þú getur varla ímyndað þér, Jonni, hvað heimurinn sagði hún. „Ég hef tvisvar komið út á heimsenda, skal ®9 þér. Já, það er nú að verða langt síðan, — ég var þá ung s ^ Hugsaðu þér bara, heimsendir er langt. langt í burtu, Þar gt stóri, þétti skógurinn endar! Og ég var heila þrjá daga að g þangað! Á ég að segja þér nokkuð, Jonni? Þegar þú ert grU dálítið stærri, skulum við tvö ferðast út á heimsenda. Þar bananarnir helmingi stærri og döðlurnar helmingi sætari en En Nonni og Tóta, — þau skulu fá að hírast heirna." nda’ „Já, en mamma, eru litlir apakettir líka úti við heims® spurði Jonni. „Já, já, þeir eru þar!“ svaraði Sallý. 0ndir. „En eru apakettirnir litlu úti við heimsenda líka mamrna?" spurði Jonni. „Nei, nei, — þeir eru fjarska góðir,“ svaraði Sallý- jonpi. „Heldurðu, að þeir stríði mér þá ekki, mamma?" spurð' ... „Nei, alls ekkiI" svaraði Sallý. „Þú átt nú eftir að kynnast^un „Jæja, það er ágætt,“ sagði Jonni og þurrkaði sér urt1 3 0g Síðan sveiflaði Sallý sér á milli trjánna, leikandi létt. 01 ^ hún hefði enga byrði, og spjallaði alltaf við Jonna litla. "^Usag3i ég kenna þér, hvernig þú átt að brjóta kókoshneturnar, j|| hún, greip kókoshnetu og kastaði henni af miklum krafti m ^ ^ jarðar. „Nú skaltu flýta þér niður og taka hana upp, Þv' a ^nii er skelin harða brotin. Svo skulum við skipta innihaldinu a pVj okkar, — og það verður nú heldur en ekki gott á bragði • ^ næst sagði hún honum frá öllum dýrum skógarins, °9 nljrTi skamms hafði vesalings Jonni gleymt máttvana handl®9 sínum og öllum áhyggjum. -tödÞ- Þegar þau komu heim aftur, voru Tóta og Nonni Þar 5 Sallý kleip í eyrun á þeim og ávítaði þau. ,agði „Þið eigið að muna að vera góð við hann Jonna IÞ|a' gegur hún. „Hann getur ekkert að því gert, að hann er ekki eins a ag og þið. Hef ég ekki mörgum sinnum sagt ykkur, að þið e'®sernd sýna þeim, sem eitthvað er að, enn meiri nærgætni og v' en öðrum! Munið þið það!“ 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.