Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 28

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 28
r Bakkus við taflborðið Alllr munu vera sammála um það, aS stórmeistarar og höfuSkempur skáklistarinnar — heimsmeistararnir — þurfi aS vera reglumenn í hvívetna, eigi þeir að halda frama slnum. Og ekki er því að neita, að langflestir þeirra hafa verið það, en þó finnast dæmi um hið gagnstæða. Árið 1927 eignaðist skákheimurinn nýjan heimsmeistara, þegar Rússinn Alexander Aljechin vann einvígi við Kúbu- mannlnn Capablanca. — Aljechin var að ýmsu leyti mjög vel gerður maður. Hann var talinn Ijóngáfaður, og hann hafði lagt stund á lögfræði og málanám. Eftir að Aljechin settist að í Frakklandi, hélt hann vel á spilum sinum fjárhagslega og græddist honum drjúgum fé á því að tefla. Hann keypti sér fallegt hús, og hann gekk hvorki meira né minna en fimm sinnum í hjónaband. Til gamans má geta þess, að Aljechin átti sér „heilladýr", sem var köttur. Lét hann köttinn stundum ganga yfir tafl- borðið hjá sér, áður en hann hóf að tefla. Eitt sinn tókst svo tii — ( miðri skák — að kötturinn stökk upp á borðið og felldi um koll nokkra menn á skákborðinu. Kættust áhorfendur af þessu og höfðu við orð, að rétt mundi vera að útvega læðu til kattarins, til þess að keppendur gætu teflt I frlði! Á árunum 1927—1935 var Aljechin óumdeilanlegur kon- ungur skákheimsins og hann ríkti þar með harðri hendi. En illa þoldi hann að tapa. Eitt sinn tapaði hann skák, sem hann hafði talið fyrirfram unna, og var þessi skák tefld um efsta sætið I þýðingarmiklu skákmóti. Þegar hann kom heim á hótelherbergi sitt, mölbraut hann öll húsgögnin þarl Hann var skapmaður mikill og lét ekki hiut sinn fyrr en f fulla hnefana. En þótt skákguðinn stæði honum til hægri handar og stjórnaði ieikjum hans, var þó kominn annar náungi upp að vinstri hönd hans — Bakkus konungur. Talið er, að á þessum árum hafi Aljechin stundum reykt 100 vindlinga á dag og drukkið heila flösku af viski. Það þarf sterk bein til þess að þola slíkt líferni, en meðfædd hreysti hans hélt honum uppi enn um stund. Svo kom einvigið við Max Euwe, hinn harðskeytta Hol- lendlng, sem þó var ekki talinn jafnoki Aljechins hvað skáksniili snerti. Langvarandi vinneyzla heimsmeistarans mun þá hafa verið tekln að grafa undan skákstyrkleika hans alllöngu áður en einvigið hófst, en úrslitum hefur þó eflaust ráðlð, að þegar líða tók á einvígið og Aljechin taldl sér sigur vísan — hann hlaut sex vlnninga af fyrstu níu skák- unum — þá tók hann að slappa af og kneyfa sterka drykki og tefldi jafnvel sumar skákirnar beint undir áhrifum áfeng- is. Gekk þetta svo langt, að talið er, að Euwe hafi um skeið ihugað það úrræði að hætta þátttöku i einviginu, fremur en reyna að ná titlinum af hinum ölkæra heimsmelstara. En nú urðu örlagarík þáttaskil f einviginu, þvi að fjórtán skákum tefldum voru keppendur jafnir að vinningum. ' Euwe hafði þannig hlotið fjóra vinninga i fimm skákum I röð! Mun Aljechln aldrei fyrr né siðar hafa hlotið slíka útreið. Aljechin náði sér þó nokkuð á strik aftur og haföi tv0 vinninga yfir að nitján skákum tefldum, vantaði aðeins 41/2 vinning til að halda titlinum. Euwe þurfti hins vegar að ná 7 vinningum til að fá hann. Reiknað i vinningum sýndist Aljechin þannig aftur vera með pálmann i höndunum. Mun honum því hafa þótt við hæfi að gera sér virkilega glaðan dag, en gallinn var sá, að Bakkus reyndist honum ekki hollur ráðgjafl við skákborðið. Tapaði hann næstu tveimur skákum, og voru þá keppendur aftur jafnir (með 101/2 vinn- ing hvor). Næstu þrjár skákir urðu jafntefli, en þá vann Euwe aftur tvær ( röð. Þar með var [ rauninni útséð um úrsllt einvigislns, og lokin urðu þau, að Euwe hlaut 1 SVá vinning gegn 141/2. Þótt fæstir munu þeirrar skoðunar, að Euwe hefði nokkru slnnl unnið heimsmeistaraeinvigl gegn Aljechin, hefði sá siðarnefndi stundað reglusamt lifernl meðan á einvfginu stóð, þá er ástæðulaust að gera of lítið úr sigrl Euwes. Hann var sjálfur algjör bindindismaður, og er því vafasamt, að óregla Aljechins hafi að öllu leyti verið ávinningur tyrir Euwe. Sjálfsagt hefur hún einnig farið nokkuð f taugarnar á honum. Hér kemur svo ein skákin úr þessu eftirminniiega eln- vigi, sú 14. Vafalitið má telja, að þarna hafi Bakkus ráðið byrjunarleikjum heimsmelstarans, sem hér stjórnar svörtu mönnunum. Hvítt: Euwe — Svart: Aljechin. — Griinfeldsvörn. 1. d4, Rf6 2. c4, g6 3. Rc3, d5 4. Bf4, Rh5 (Það er ekki tímabært að eyða leik f þessi mannakaup. Betra er 4. • ■ • Bg7 og síðan 0—0.) 5. Be5, f6 6. Bg3, Rxg3 7. hxg3, c6 8. e3, Bg7 9. Bd3 (Gallarnir við byrjunarkerfi Aljechins eru augljósir. Opnun h-l(nunnar og leikurinn f6 hafa veikt mjög vinstra fylkingararm hans. Euwe hótar nú þegar 10. Hxh7. 26
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.