Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 42
Ljósm.: Arngrímur Sigurðsson
NR. 145 TF-FIJ
FOKKER FRIENDSHIP
Skráð hér 12. maí 1965 sem TF-FIJ, eign Flugfélags íslands hf.
Hún hlaut nafnið Blikfaxi. Flugvólin var keypt ný frá Hollandi (flaug
þar 1. reynsluflugið 3. maí 1965, skrásett PH-FGR 4. maí).
Hún var smiðuð 1965 hjá N. V. Koninklijke Nederlands Vlieg-
tuigenfabriek Fokker, Schiphol, Amsterdam. Raðnúmer: 10274
(„Version No. 177“).
FOKKER F-27-100 FRIENDSHIP: Hreyflar: Tveir 1850 hha. Rolls-
Royce Dart R. Da. 6 Mk. 514-7. Vaenghaf: 29.00 m. Lengd: 23.50 m.
Hæð: 8.50 m. Vængflötur: 70 m=. Farþegafjöldi: 48. Áhöfn: 2.
Tómaþyngd: 10.295 kg. Grunnþyngd: 10.904 kg. Hámarksflugtaks-
þyngd: 18.370 kg. Arðfarmur: 6.390 kg. Farflughraði: 430 km/t.
Hámarkshraði: 476 km/t. Flugdrægi: 1.250 km. Flughæð: 8.840 m.
1. flug: 24. nóv. 1955. — Flugdrægið er miðað við hámarksarð-
farm; með hámarkseldsneyti er flugdrægið 2.020 km, og arðfarmur
þá 3.630 kg.
NR. 146 TF-AIN
D. H. 114 HERON
Srkáð hér 14. maí 1965 sem TF-AIN, eign Flugsýnar hf. Hún
var keypt frá Englandi; þar hafði hún verið rekin af Shell Aircraft
Limited og skráð G-AOHB, en síðasti eigandi, áður en hún kom
tll íslands, var Shackleton Aviation Limited I London. Hér var
hennj gefið nafnið Norðfirðingur.
Hún var smíðuð 1956 hjá De Havilland Aircraft Co., Chester.
Raðnúmer: 14100.
Flugvél þessi var einkum notuð á flugleiðinni Reykjavík—Nes-
kaupstaður, og gekk það flug ágætlega. Þó gerðist það'7. sept.
1965, er flugvélin var á leið frá Reykjavík til Norðfjarðar, að ein
skrúfan brotnaði af öxli sínum. Var flugvélinni strax flogið til
Reykjavíkur, þar sem ný skrúfa var sett á.
Hún var tekin af skrá hér 26. okt. 1966 og hafði þá verið seld
til Puerto Rico.
DE HAVILLAND D. H. 114 HERON SERIES 2D. Hreyflar: Fjórir
de Havilland Gipsy Queen 30 Mk. 2, 250 hö. hver. Vaengha •
21.80 m. Lengd: 14.80 m. Hæð: 4.75 m. Vængflötur: 46.4 m2-
þegafjöldi: 15. Áhöfn: 2. Tómaþyngd: 3.848 kg. GrunnþynS
4.257 kg. Hámarksflugtaksþyngd: 6.124 kg. Arðfarmur: 1.462 kS-
Farflughraði: 295 km/t. Flugdrægi: 800 km. Flughæð: 5.240 hi-
1. flug: 10. maí 1950. — Series 2 flaug fyrst 14. des. 1952.
NR. 147 TF-FLB/FhD
CESSNA 172F
Skráð hér 22. maí 1965 sem TF-FLB, eign Flugskólans Rýts
Hún var keypt ný frá Bandaríkjunum (N11B); ætluð hér til kenns
og leiguflugs.
Hún var smíðuð 1965 hjá Cessna Aircraft Company, W|C
Kansas. Raðnúmer: 17252695. r
29. maí 1965 fór flugvélin fram af flugbrautinni í Flatey, Þe^
hún var að hefja sig til flugs með barnshafandi konu, sem "^
átti til Reykjavíkur. Flugvélin hafnaði á hvolfi í fjöruborðinu,^
konuna, annan farþega og flugmann sakaði ekki. F|LJ9
skemmdist mjög mikið. . n
11. október 1968 var flugvélin endurskráð sem TF-FHD,
Helga Jónssonar, en hún hafði þá verið gerð upp. Hún var
notuð til kennslu- og leiguflugs, unz hún nauðlenti á sjó ska
norðvestur af Engey 5. janúar 1972. Flugvélin sökk, en flugm
inum, sem var einn í vélinni, var bjargað.
CESSNA 172F: Hreyflar: Einn 145 ha. Continental 0-300-D- VsenS
haf: 11.02 m. Lengd: 8.07 m. Hæð: 2.72 m. Vængflötur: 16-16 ^
Farþegafjöldi: 3. Áhöfn: 1. Tómaþyngd: 618 kg. Hámarksflugts1
þyngd: 1.043 kg. Arðfarmur: 238 kg. Farflughraði: 209 km/1- ^
markshraði: 279 km/t. Flugdrægi: 958 km. Flughæð: 3.996
1. flug: 1955, Model 172F: 1. október 1964.
40