Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 54

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 54
Sögur Munchausens baróns f ii>4 . ,v-r.V^\C' • - -nn^V Wi \ -■ *' -***~*— iíAJS VF* Sagan af birninum og úlfinum Hvað segirðu til að mynda um þetta? Ég var búinn að eyða í pólskum skógi bæði púðrinu og deginum og var nú á heimleið. Sé ég þá hvar kemur á flugferð ógurlegur björn gapandi og stefnir beint á mig. Ég leitaði í ofboði í öllum vösum mínum að púðri og höglum, en allt var tómt. Ég fann þar aðeins tvær tinnusteinsvölur og sendi ég aðra af öllu afli I opinn kjaftinn og ofan I björninn. Hann fann illi- lega til og sneri sér við, og fékk ég við það tíma til að senda honum hinn tinnumolann, og hann gerði ekki lítið að verk- um: hann flaug sömu leið og hinn og skall á honum niðri I maganum á birninum og kveikti þar eld, svo að björninn sprengdist sundur með ógurlegum hvelli. Ég slapp nú lif- andi frá þessu I það sinn, en ekki langaði mig til að kom- ast í það aftur að ganga á móti björnum og hafa ekki önn- ur skotfæri en þetta. En það er líkast því sem þetta væru forlög mín. Ég varð oftast fyrir ólmustu dýrunum og háskalegustu, þegar ég var verjulaus, eins og þau hefðu grun um það eða fyndu það á sér. Svona réðst óttalegur úlfur svo snögg- lega á mig og komst svo fast að mér, að mér varð það eitt fyrir að reka hnefann inn í galopinn trantinn á honum. Til þess að vera viss, herti ég á og ýtti á eftir, þar til allur handleggurinn var kominn ofan I hann upp að öxl. Em hvernig átti ég svo að losa mig? Mér þótti ég ekkert vel staddur I þessari klípu, að horfast þarna í augu við úlf; og það voru engin ástaraugu, sem við renndum þar hvor til annars. Drægi ég að mér handiegginn, var hann vís með að rjúka á mig enn þá vitlausari en áður, því að augun tindr- uðu I honum. Það er stytzt af að segja, að ég tók með hendinni í rófuna á honum og sneri honum við að endi- löngu eins og vettlingi, slengdi honum niður og lét hann liggja þar eftir. Sagan af gæðingi barónsins Ég var staddur á hinu prýðilega höfðingjasetri Przóbos* skýs greifa I Lítúaníu og sat að tedrykkju í sparistofunm, en karlmennirnir voru úti í garðinum að skoða ungan kýn' bótafola nýkominn úr stóði. Allt I einu heyrðum við neyðar- óp að utan; ég flýtti mér ofan og sá þá, að folinn var svo stríðólmur, að enginn maður þorði að taka hann eða fara á bak honum; æfðustu og slyngustu hestamenn stóðu Þar ráðalausir og steinhissa. Hugsýkin skein þa? út úr hverjum manni. Ég henti mér þá í einu stökki á bak folanum, að honum óvörum, og gerði hann I einum svip svo þægan eins og lamb og lússpakan og tók þar á allri tamningasnilld minn1’ Ég vildi sýna þetta kvenfólkinu og taka frá því allan ótta, og neyddi því hestfnn til að hlaupa með mig inn um glugS' ann inn í stofuna til þeirra, og fór þar i hring um stofun3 hvað eftir annað á valhoppi, stökki og klyfjagangi, og síðustu hleypti ég honum upp á teborðið og lét hann fara þar allan sama ganginn i smáhringum, og var það frúnum 52
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.