Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 50

Æskan - 01.10.1973, Blaðsíða 50
BLfcSKJkH „Þe'i’." sagði Blásk'iár. „Við skuium hiusta á, hvað þeir seg\a. Eí til vill getum við haít gagn ar því.“ Ræningjarnir voru nú ekki lengra frá börnunum en svo, að þau gátu heyrt orðaskil í næturkyrrðinni. „Biðið við!“ heyrðu þau Svarta Eirík grenja. „Kveikið á blys- unum! Jörðin er vot hér, og við hljótum áð geta fundið sporin, þar sem þau hafa gengið. Krakkaóþokkarnir geta ekki verið komnir mjög langt.“ „Þvi er miður, að hann segir satt,“ sagði Bláskjár. „Nú sjáum við Ijósglætuna af blysunum á milli greinanna, og finni þeir sporin, verða þeir ekki lengi að ná okkur. Nú riður á að flýta sér. Hertu þig nú, Valter.“ Þau brutust nú inn á milli trjánna, þar sem þau voru þéttust, og nú kom Bláskjá að góðu haldi, að hann var vanur myrkrinu, því að hann gat auðveldlega fundið greiðfærasta veginn. Hefði bjart- ur dagur verið, mundu flökkumennirnir hafa náð þeim fyrir löngu. En þeir urðu með miklum erfiðleikum að brjótast gegnum þyrnirunnana og allt, sem fyrir varð, og skríða til að Ieita að sporunum. En börnin héldu alltaf áfram. Það liðu þó ekki margar minútur áður en börnin skildu á gleðiópum ræningjanna, að þeir höfðu fundið sporin, og þau heyrðu á brakinu í greinunum, að þeir komu nær og nær. Þau sáu nú betur og betur Ijósglætuna frá blysunum, og reiðióp ræningjanna létu æ voðalegar í eyrum þeirra. Fóru nú kraftar barnanna þverrandi. Valter gafst upp fyrst. Hann saup hveljur, og fæturnir gátu ekki lengur borið hann. ,,Nú kemst ég ekki lengra,“ sagði hann um leið og hann hneig niður og tók nú að gráta beisklega. „Þú mátt til með að halda áfram,“ sagði Bláskjár, „bara ofur- lítinn spöl enn þá. Ef til vill hætta þeir að leita eða við finnum góðan stað, sem við getum falið okkur í.“ „Komdu, Valter," sagði Ella. „Styddu þig við mig. Ég er ekkert lúin enn. Þegar þú ert orðinn alveg uppgefinn, skal ég bera þig dálitla stund, þá færðu kraftana aftur.“ „Nei,“ sagði Valter og grét enn sárar, „látið mig bara liggja hér kyrran. Ég á hvort sem er ekki að komast hjá að lenda í höndum ræningjanna." „Þetta er Ijótt, Valter. Heldurðu, að guð hjálpi okkur ekkl, það sem eftir er af leiðinni, úr því hann hefur hjálpað okkur svona langt. Nú skulum við bæði leiða þig, og svo hlaupum við eins og við getum. Heyrðu! Nú koma þeir.“ Hávaðinn í ræningjunum, sem alltaf barst nær og nær, kom honum til að reyna af alefii á síðustu kraftana. Ella og Bláskjár tóku hann á milli sín og drógu hann með sér, hvað sem í vegi varð. Enn dró dálítið sundur með þeim, og börnin fóru að gera sér von um að sleppa. En þá datt Ella endilöng um stein og tók a N/atter meö sér \ fatUnu. N/atter metddt s\g og h\\óðaS\ upp af sársauka og gat ekkt r\s\S upp aftur. I „ „Ó’. Ég finn svo tit í fætinum’." sagði hann og grét. ,,Ég get ekki staðið upp’.“ Hin börnin tóku nú undir hendur honum og reyndu að lyfta honum upp, en hann gat ekki stigið i fótinn og hneig niður aftur og kveinkaði sér. „Ég get það ekki. Farið þið ög skiljið mig eftir. Þið getið enn þá ílúið, annars lendum við öll í klónum á þeim aftur.“ „Nei, Valter. Við yfirgefum þig ekki,“ sögðu bæði börnin. ,,Ef þú getur ekki gengið, verðum við að bera þig. Leggðu handlegg- ina um hálsinn á okkur, og reyndu að halda þér fast.“ Valter reyndi að halda niðri í sér hljóðunum, og nú héldu þau áfram, en gekk ekki eins vel og áður. Þótt byrðin væri þung, voru kraftarnir ekki heidur miklir til að bera hana, og var nú komið að því, að þau höfðu ekki annað ráð en að gefast upp. „Nú getum við ekki meir,“ sagði Bláskjár við Ellu, sem var að því komin að hníga niður. „Þarna er stór eik og þéttir runnar í kring. Við skulum fela okkur þar og bíða átekta.“ Þau flýttu sér þangað, skriðu undir runnana, vöfðu handleggj- unum hvert um annað og sátu svo án þess að hreyfa sig hið minnsta. „Ef þeir finna okkur, drepa þeir okkur strax, eða þá að þeir setja okkur i svartholið," sagði Valter og stundi við. „Heyrið, hvernig svarti Eiríkur blótar," hvíslaði Ella. „Flýtið ykkur að ná í bannsetta hrafnsungana," heyrðu þau svarta Eirík segja, „mig er farið að dauðlanga til að lemja þau til blóðs.“ „Cg setja þau svo undir eins í svartholið," sagði annar, ,,þá skulum við sjá til, hvort þau missa ekki löngunina til að strjúka aftur." Náföl og skjálfandi af hræðslu heyrðu börnin þessar voðalegu hótanir. Og þegar þau heyrðu braka í greinunum varla fimmtíu fet frá sér, þrýstu þau sér fast saman og biðu í dauðans angist komu þrælmennanna. Allt í einu leit Ella við og sagði í ofboði: ,,Nú hljóta þeir að finna okkur, þarna koma þeir með blys hinum megin írá líka.“ „Því er verr, að þú hefur rétt fyrir þér,“ sagði Bláskjár í ör- væntingu, „nú er öll von úti. Ég hafði þó svo góða von um, að guð mundi hjálpa okkur. En við vitum ekki, til hvers hann kann að láta þetta verða.“ „Pabbi minn segir svo oft, að þegar neyðin er stærst, sé hjálpin næst,“ sagði Valter litli. „Þá hjálpar hann okkur líka,“ sagði Ella vongóð. „Það er ómögulegt, að guð, sem er svo góður, yfirgefi okkur í þessari hættu.“ k, 00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.