Æskan

Volume

Æskan - 01.10.1973, Page 39

Æskan - 01.10.1973, Page 39
 Hellnakirkja Vestarlega á sunnanverðu Snæfeltsnesi er fögur og 9rösug sveit. Hún heitir Breiðavík. Spölkorn vestan við hana er lítið, fallegt sjávarpláss. þar heitir á Hellnum. Þar er kirkjustaður. Þar var kirkja fyrst relst 1882. Áður hafði hún staðið á hinu forna prests- setri Laugarbrekku. Þar er nú auðn. Fyrsta kirkjan á Hellnum var með torfveggjum eins og tíðast var áður íyrr. Síðan voru veggirnir úr timbri en þak úr járni. Þetta var lítil kirkja — tók um 40 manns. Á henni var enginn turn. Þessi kirkja stóð fram á 5. tug þessarar aldar. En á árunum 1942—45 var reist ný kirkja á Hellnum og var hún vígð 12. ágúst 1945 af þáverandi biskupl hr. Sigur- gelr Sigurðssyni. Þetta var einkar hátíðleg athöfn, sem fór vel fram, enda vandlega undirbúln. Meðal annars hafði ungur maður i sókninni útbúið „heiðurshlið". Á það voru letruð á listrænan hátt stórum stöfum orðin Kærleikur Krists knýr oss. Enda þótt Hellnakirkja sé ekki eldri en þetta, tæplega 30 ára, hefur viðhald hennar verið mikið, enda er nú búið að endurnýja svo til allt klrkjuhúsið. En þessi fámennl söfnuður, sem telur aðeins 35 gjaldendur, hefur sýnt mikla fórnfýsi og einstakir menn eins og t. d. sóknarnefndar- formaðurinn, Finnbogl G. Lárusson, hafa lagt fram mikla vinnu, sem ekki er borguð nema með gleðinni yfir góðu starfi. En það eru líka dýrmæt laun, öllu gulli betri. Söfnuður Hellnaklrkju er fámennur. En hún á líka, eins og fleiri kirkjur, sína vini og velgerðarmenn utan sóknar- innar, sem oft hafa gefið hennl góðar gjafir. Ekki verða þeir taldir hér. Hins má geta, að hún á ýmsa góða grlpi forna. Úr Laugarbrekkukirkju er önnur klukkan, hln úr kirkjunni á Einarslóni. Frá Laugarbrekkukirkju er líka Ijósahjálmur 12 arma, forkunnar fagur, og tveir veggstjakar tveggja arma úr kopar. Altaristaflan er Kristur f Emmaus. Rammlnn er útskorinn f mahóní — mikið listaverk. En svo farið sé út í nokkuð aðra sálma f lok þessa spjalis um Hellnakirkju skaðar ekki að nefna aðra kirkju í nánd við Hellna. Um hana segir f lýsingu Snæfellsness í Árbók Ferðafélagsins 1932 eftir Helga Hjörvar: „Þegar lagt er upp frá Hellnum vestur á leið og komið er á ieitið, sem er fyrir vestan bæinn, mun vegfarandanum bregða f brún við þá sjón, sem hann nú sér. Þá blasa vlð Lóndrangar skammt vestar. Eru þeir miklu meiri og stærrl en maður hefðl getað búizt við. Þeir gnæfa hátt við löftið með turna og spírur og eru Ifkastir að sjá risavaxinni klrkju, sem ber við hlmin eln á bersvæði. Eru drangarnlr hvergi fegurri að sjá en af þessum slóðum." G. Br. Tveir kassar eru settir á hvolf með hæfilegu millibili, og þátttakendurnir, sem eru tveir, stfga hvor upp á slnn kassa með langt skaft í hendinnl. En á endann á stöngunum er settur torfu- Sr>epii| 0g klút bundið utan um, svo endarnlr meiði ekki andstæðingana. Nú er leikurinn i því fólginn að spyrna andstæðingnum ofan af kassanum með slönginnl. En þið verðið að gæta þess Vel að láta ykkur ekkl renna í skap ^eðan á viðureigninni stendur, svo að Þ'ð farið ekki að belta fantabrögðum °9 kannski berja hvor annan með sköft- Kassakóngurinn unum. Og aldrei má ýta stönginni á andlit andstæðingsins. Munið það. Þegar amerísklr skátar leika þennan lelk, þá er fjör f tuskunum. Þeir hafa ekki klúta og torfusnepla á stangar- endanum, heldur hafa þeir hnefaleika- hanzka, og í stað kassa standa þeir á háum tunnum. Það er því ekki stór flötur en valtur, sem þeir standa á. Sá, sem fyrri stígur fæti niður á jörð, hefur tapað. Sigurvegarinn skorar þá nýjan mann á hólm, og sá, sem sfðast stend- ur uppi á kassanum, er kassakóngur. 37

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.