Æskan

Árgangur

Æskan - 01.10.1973, Síða 53

Æskan - 01.10.1973, Síða 53
Vegna stöSugrar fólksfjölgunar í heiminum er nú mikilvægara en nokkru sinnl fyrr fyrir þau lönd, sem mesta matvæla- framlelðslu hafa, að fá sem bezta uppskeru. Bændur eiga í sífelldri baráttu við jurtasjúkdóma og skordýr, sem herja á uppskeruna og skaða hana alvarlega, bæði að magnl til og gæðum. I litlum görðum og á tiltölulega lltlum búum er hægt að hafa hemll á þessum plágum með úðun, s6tn framkvæmd er með handafli eða úðunartæki á hjólum með einhvers konar geymi, sem i er lögur eða duft það, er nota á. En í víðáttumiklum löndum, svo sem Ameríku og Kanada, og á nokkrum búum i Bretlandi, eru notaðar flugvélar sérstak- 'ega útbúnar í þessum tilgangi. Flugmennirnir, sem fljúga þessum litlu vélum, verða að vera sérlega vel þjálfaðir [ lágflugi. Þessar flugvélar verða að vera búnar traustum hreyflum, vegna þess að vélarbilun í lágflugi gæti valdið snöggu stórslysi. Flugmönnunum til öryggis ^afa sumar flugvélar, sem sérstaklega eru útbúnar til þessara starfa í þágu landbúnaðar, hliðarsveigjuvíra strengda frá stjórnklefanum í stélbúnaðinn, og stoðir á vængjum og hjólabúnaði til að ná sundur strengjum. Jafnvel gætnasti flugmaður getur af slysni flogið á símalínur — eða, það sem verra er, á rafstrengl. Stjórnklefl vélarinnar, sem dráttlistarmaðurinn hefur gert þessa mynd af (Cessna Agwagon), er styrktur með stöng til að hindra veltu og flug- ^anninum til varnar, ef flugvélin rekst á. Mesti hraði, sem þessar litlu vélar ná, er um 225 km á klukkustund. Lyoming-hreyflarnir, sem þær eru búnar, hafa 150 ^estafla orku við 2.700 snúninga, og hreyflarnir ganga fyrir 80 octane eldsneyti. Nýrrl gerðir þessara flugvéla hafa sterkari hreyfla, allt að 230 hestafla. Úðunartækið tekur um 900 lítra af fljótandl skordýraeitri. Flugvélar notaðar í þágu landbúnaðar 51

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.