Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.01.1980, Qupperneq 3

Æskan - 01.01.1980, Qupperneq 3
 Ritstjóri: GRÍMUR ENGILBERTS, ritstjórn og skrifstofa: Laugavegi 56, sími 10248, helmasími 12042. Framkvæmdastjóri: KRISTJÁN ' • ‘Dl. GUÐMUNDSSON, heimasími 23230. Afgreiðslumaður SIGURÐUR KÁRI JÓHANNSSON, heimasími 18464. Afgreiðsla: Laugavegi 56, sími JanÚar 81. árg. 17336. — Utanáskrift: ÆSKAN, Pósthólf 14, 101 Reykjavík. Póstgíró 13014. Útgefandi: Stórstúka íslands. — Prentað í Prentsmiðjunni 1980 Odda hf. Flestir hafa víst ánægju af því að horfa á lognmollu eða skæðadrífuna, sem fellur létt og mjúkt til jarðar. En þó mundu menn hafa enn meiri á- nægju af því að skoðasnjóflygsurnar í stækkunargleri og sjá, hve snjókornin eru dásamlega fögur. En ef hann hvessir svo, er þetta allt breytt, og snjókornin hafa fengið nýjan svip. Snjór Hann myndast þegar lofthitinn kemst niðurfyrirfrostmark, oftast nær þannig, að vatnsgufurnar í loftinu breytast í fast efni, án þess að breyt- ast fyrst í vatn. Vísindamenn segja, að vatnseind- irnar þurfi að ná sér í kjarna, áður en þær geti kristallast. I efri loftlögunum er mikið af ryki, smásaltkristöllum úr snjónum og plöntufrjóvum. Að þess- um ögnum dragast vatnseindirnar og mynda þar líkt og fylkingar. Grikkir hinir fornu nefndu snjóinn ,,vatns-ull". Þeir litu á hann sem heild og dáðust að fegurð hans, enda þótt hún komist ekki í neinn samjöfnuð við fegurð hinna einstöku ískristalla. Reglubundin lögun einstakra snjó- korna og takmarkalaus margbreytni þeirra uppgötvaðist ekki fyrr en smá- sjáin kom til sögunnar. Nú á einni ár- um hafa snjókorn verið varðveitt þannig, að steypt er utan um þau þunnt plastefni, sem er gagnsætt og harðnar afar fljótt. Síðan má raða þessum snjókornum á glerfjalir, geyma þau þar lengi, athuga þau í smásjá og taka af þeim Ijósmyndir. Þessar rannsóknir hafa leitt í Ijós, að engin tvö snjókorn eru nákvæm- lega eins, enda þótt flest þeirra séu í líkingu við sexhyrnda stjörnu. Marg- breytileikinn er sem sagt takmarka- laus. Stundum kemur það fyrir, þótt sjaldan sé, að snjókorn eru þríhyrnd. Einn vísindamaður, sem lengi hefur fengist við snjórannsóknir, hefur tek- ið Ijósmyndir af 4000 mismunandi tegundum þeirra. Annar vísindamað- ur hefur giskað á að enda þótt 1.000.000.000.000 snjókorn falli sam- tímis á eina ekru lands, þá séu engin tvö þeirra nákvæmlega eins. Slík er fjölbreytnin ílistaverkum náttúrunnar. 1

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.