Æskan

Årgang

Æskan - 01.01.1980, Side 7

Æskan - 01.01.1980, Side 7
♦.* Alt TRÉSINS 1980j^~\ I tilefni 50 ára afmælis Skógrækt- arfélags íslands á þessu ári hefur verið ákveðið að efna til átaks í gróðursetningu trjáa hér á landi og verður árið 1980 „Ár trésins". Skógræktarfélag Islands var stofnað á Þingvöllum Alþingishátíð- arárið 1930. Snemma árs 1979 ákvað stjórnin að efna til sams konar átaks í gróður- setningu trjáa hér á landi á afmælis- árinu 1980. Samstarfsnefnd var sett á laggirnar og hélt hún sinn fyrsta fund 22. maí sl. I nefndinni eiga sæti margir aðilar sem að garðræktarmálum og búnaðarmálum standa, auk sveitar- félaga, ráðuneyta og ýmissa sam- banda. Með ári trésins er stefnt að ýmsum verkefnum, m. a. að kynna trjárækt, skógvernd og skógrækt á íslandi, að kynna gildi skógræktar, trjáræktar og hvers konar ræktunar trjáa og runna- gróðurs. Einnig verður lögð áhersla á þýðingu þess fyrir umhverfi hvers og eins að rækta tré og þýðingu skjóls fyrir alla ræktun, með tilliti til híbýla og vellíðunar fólks. Þá er stefnt að því, með ári trésins, að leiðbeint verði um trjáplöntun í garða og skjólbelti, um hirðingu trjáa og verndun þeirra, um plöntun skógplantna og höfuðþætti í skipulagningu trjágarða og skjól- gerða. Þá leggur samstarfsnefnd um ár trésins áherslu á að sem allra flestir geti tekið þátt í trjárækt og skógrækt á árinu með því að planta trjám eða skógarplöntum eftir því sem aðstæð- ur hvers og eins leyfa. Einnig leggur nefndin áherslu á að einstaklingar verði hvattir til að fegra á þann hátt í kringum híbýli sín, og verði félög hvött til fegrunar á sínum starfssvæðum. Opinberir aðilar, sveitarfélög og aðrir verði hvattir til að fegra á hliðstæðan hátt svæði í kringum byggingar, svo sem skóla og hvers konar þjónustu- byggingar og mannvirki, svo og á öðrum almenningssvæðum sem liggja innan þeirra vébanda. Sam- starfsnefndin væntir þess að ,,Ár trésins 1980“ hljóti góðar undirtektir, ekki síst þegar þess er gætt hve ís- land er fátækt af trjá- og skógar- gróðri, þó að reynsla sé á því fengin að rækta megi hér fjölda trjá- og runnategunda víðs vegar um land með ágætum árangri. (fcSHANfSS^ ÁETRESmS » PKÝDIJM LANDII) PLÖMUM IIUAM « 5

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.