Æskan - 01.01.1980, Page 33
fslenski hópurlnn.
Nú hefur skátaopnan göngu sína á ný í
Æskunni og vona ég að skátar um allt
land sýni skátaopnunni áhuga og sendi
mér fréttir af starfinu í sveitum sínum.
Elín Lýðsdóttir,
Ásvegi 21,
Akureyri.
I Kaupmannahöfn.
«j>»SKÁTAOPNAN« Jti
Áttavltalelkur í Dyrehaven.
NORDISK R. R. LEIR
Þann 27. júní sl. lögðu 32 hressir skátar af stað héðan
frá íslandi og ferðinni var heitið á skátamót í Noregi.
Eftir að hafa setið í þotu í 2'A tíma lentum við á Kast-
rupflugvelli í Kaupmannahöfn. Dvöldum við í Höfn í fjóra
dagaog bjuggum þann tíma í skátaheimili sem KFUM-og
K-skátar þar eiga. Auðvitað var farið í Tivoli, einnig var
farið í áttavitaleik í Dyrehaven, en það er stór og fallegur
garður við útjaðar Kaupmannahafnar.
Á fimmta degi flugum við yfir til Kristjansand og loksins
stigum við á norska grund. Við gistum í skátaheimili og
meðal okkar voru þýskir skátar sem voru á sömu leið og
viö. Þetta kvöld sem við áttum þarna saman héldum við
stóran og skemmtilegan varðeld og þar var mikið sungið.
Daginn eftir steig íslenski hópurinn upp í rútu, sam-
einuðust þar nokkrir Danir okkur og var haldið af stað á
mótsvæðið í Valle í Setesdal.
Þegar rútan stoppaði hoppuðu allir út en urðu mjög
undrandi því ekki sáust nein merki um að þarna væri að
hefjast skátamót. En einhvern veginn komumst við þó að
upplýsingamiðstöð mótsins. Þar var okkur skipt niður í
svokallaða eldunarhópa og voru einn til tveir (slendingar
plús átta manneskjur frá hinum Norðurlöndunum í
hverjum hópi. Það sem okkur þótti undarlegast var aö
27