Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1980, Síða 44

Æskan - 01.01.1980, Síða 44
sem góðum grönnum sæmir. Það er því engin tilviljun, að Æskan hefur jafnan rétt málefnum Sameinuðu þjóðanna ,,örvandi hönd" og góðan skilning. Að sjálfsögðu hafa það fyrst og fremst verið mannúðar- og mannréttinda- mál, sem Æskan hefur borið fyrir brjósti og einkum Barna- hjalparsjóðurinn, UNICEF. Börn okkar og barnabörn munu vart erfa sæluríki á jcrðu. En ef við höldum áfram að brýna fyrir þeim „guðsótta og góða siði“ og njótum til þess stuðnings góðra tímarita sem Æskunnar fer ekki hjá því, að við færumst nær tak- markinu, ,,að bjarga komandi kynslóðum frá hörmungum ófriðarins." ívar Guðmundsson, ræðismaður fslands í New York. Barnatíðindi óskum Æsk- unni til hamingju með 80 ára afmælið. í Vági, Feroyum 24/11 1979. J. Berg. Emil Thomsen. Hr. ritstjóri! Öðru hverju ber mér fyrir augu ykkar ágæta barnablað, og ég hef alltaf gaman af að skoða það. Mér er Ijóst, að fátt þroskar börn og unglinga meira en það að hafa aðgang að lesefni vió sitt hæfi, og mér sýnist Æskunni takast vel að sinna þeirri þörf. Mig hefur lengi dreymt um að gefa út barnablað heima í Færeyjum, en hef ævinlega slegið því á frest, því ég veit, hve gífurleg vinna það er að halda úti slíku blaði. Á þessum merku tímamót- um í sögu Æskunnar langar mig að senda ritstjóra og út- gefendum blaðsins og öllum lesendum hugheilar afmælis- kveðjur ásamt óskum um langa og bjarta framtíð. Emil Thomsen, bókaútgefandi, Færeyjum. Æskan er nú 80 ára, og það er nokkuð langur mannsald- ur. Það er einstætt þrekvirki, að eitt félag, þótt það sé fjöl- mennt geti gefið út barna- tímarit í allan þennan tíma. Þótt árin séu svona mörg þá er blaðið alltaf ungt. Ég man hve mér þótti gaman að fá blaðið sent, þegar ég var lítill. Blaðið hafði góðan umboðs- mann á Stokkseyri, sem var duglegur að koma blaðinu út um sveitina. Sumt af efni blaðsins marglas ég, og gaman þótti mér að skoða felumyndirnar. Stundum fylgdi blaðinu kaup- bætir og það þótti mér merki- Þorvarður Magnússon. legt og gott. Eitt sinn var kaupbætirinn Kalda hjartað eftir Wilhelm Hauff og var það lesið upp til agna af mér og krökkunum í hverfinu, þar sem ég átti heima. Ég hef alltaf lesið mikið af ævintýrum og geri enn. Núna um daginn las ég svo Kalda hjartað aftur og mér fannst það gott enn. Ég óska Æskunni langra lífdaga og um leið þakka ég núverandi ritstjóra Grími Engilberts langt og gott starf við blaðið. Einnig þakka ég gömlu ritstjórunum, sem störfuðu á undan honum, hvort sem þeir eru lífs eða liónir. Þorvarður Magnússon. • Lengsti skipaskurður heimsins er Volgu-Eystrasaltsskurðurinn, sem opnaður var í apríl 1965. Hann er 2.300 km á lengd. • Dýpsta náma heimsins er Western Deep Levels Mine í Carletonville ÍSuður-Afríku. Hún var í maí 1975 orðin 3.840 metrar á dýpt. • Stærsti kastali heimsins er í Halab (Aleppo) í Sýrlandi. Hann er sporöskjulagaður og var upp- runalega umgirtur múr. Að múr þessum meðtöldum er kastalinn 375 m langur og 237 m breiður. ( núverandi mynd er kastali þessi frá dögum Hamanide konungs- ættarinnar á 10. öld. Stærsta höll, sem enn er búið í, er breska konungshöllin Wind- sor Castle í New Windsor í Berkshire. Hún er að mestu frá 12. öld og er 576X164.6 m að grunnfleti. Stærsti pýramídi og jafnframt stærsta minnismerki, sem reist hefur verið, er Cholulapýramíd- inn í Cholula de Rivadahia í Mexíkó. Pýramídi þessi er 54 m hár og nær yfir 18 ha. grunnflöt. Rúmmál hans er 3.300.000 m3, og hann er allmiklu stærri en E VEIZTU ÞAÐ? ■ Keopspýramídinn, sem er 2.570.000 m3. • BreiðastabrúíheimierCrawford Street Bridge í Rhode Island í Bandaríkjunum. Hún er 348.6 m breið. • Elstu vindmyllur heimsins, sem sögur fara af, möluðu korn í Persíu (l'ran) á 7. öld. • Hæsti viti heimsins er úr stáli og stendur við Yamashita-skemmti- garðinn í Yokohama í Japan. Vitinn er 106 m á hæð, og Ijós- styrkur hans er 600.000 kerti. Ljós hans sést úr 32 km fjarlægð. 38

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.