Æskan - 01.11.1980, Blaðsíða 60
1
Kóngulóin
Gömul
helgisaga
Eins og allir vita, fyrirskipaði Heródes að lífláta öll
sveinbörn, svo að hann gæti náð til Jesú. En Jósef hafði
verið aðvaraður í draumi og flýði með Maríu og Jesú-
barnið til Egyptalands.
Þegar Heródes heyrði það, sendi hann þegar hermenn
til að leita þeirra. Og af því að hermennirnir höfðu góða
hesta, en Jósef vargangandi með Maríu, getið þið skilið,
að fljótt dró saman með þeim.
Þegar þau Jósef og María sáu hættuna nálgast, földu
þau sig í afskekktum helli við veginn. Þar ætluðu þau að
bíða, þar til hermennirnir væru farnir fram hjá. Það leið
þó stutt stund, þar til tveir hermenn komu að hellis-
dyrunum.
,,Hér hafa þau eflaust falið sig," sagði annar þeirra.
„Kveiktu á blysunum, við skulum rannsaka hellinn."
Jósef og María urðu auðvitað mjög óttaslegin, er þau
heyrðu þetta, en svo svaraði hinn hermaðurinn hlæj-
andi:
,,Nei, hér geta þau ekki verið. Sjáðu bara. Inngangin-
um er lokað með kóngulóarvef. Hvernig heldurðu að þau
hefðu getað komist inn án þess að slíta vefinn? Menn
þurfa aðeins að hugsa, þá sparar það bæði tíma og
áreynslu."
,,Þú hefur rétt að mæla," sagði hinn hermaðurinn.
,,Hér hafa þau ekki getað falið sig." vSvo keyrðu þeir
hestana sporum og hurfu.
Undrandi og ánægt skreið flóttafólkið aftur út í sól-
skinið. Þá lyfti Jesúbarnið hendinni og blessaði kóngu-
lóna, sem hafði spunnið vef sinn fyrir innganginn á ör-
skammri stundu og meó því gabbað leitarmennina. Og
sjá. Þegar kóngulóin kom í Ijós kom tákn hins heilaga
kross fram á baki hennar!
Enn þann dag í dag ber kóngulóin þetta heiðursmerki.
Margir telja hana gæfudýr, og í net sitt veiðir hún að
minnsta kosti flugur og skordýr, sem an.nars mundu
angra menn og dýr á sumrin.
Þýtt.
JÓLASVEINN ÚR LEIR
Eins og þið ef til vill vitið, þá fæst núorðið leir til að
móta og sem ekki þarf að brenna í ofni á eftir. Þetta
er hinn svonefndi „Das-leir“ og fæst víða í
föndurbúðum. Þennan jólasvein, sem þið sjáið hér
er hægt að forma í mörgum hlutum og þrýsta þeim
svo saman. Best er að gera undirstöðuna fyrst og
setja grautarskálina og bol ásamt fótum fast.
Stærðina á sveinka getið þið haft að vild, en látið
líða nokkra daga, áður en þið farið að „fínpússa"
hann og mála. —
46