Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1980, Side 84

Æskan - 01.11.1980, Side 84
ÉG KAUPL. DOK" Á viðkvæmu skeiði vaxtar og þroska skiptir gott andlegt fóður megin máli. Það þarf að vera vel framreitt en jafnframt kjamgott og spennandi. Þessa kosti sameina unglingabækumar frá IÐUNNI. Því miður er árlega gefínn út fjöldi bóka ærið misjafn að gæðum. Kynnið ykkur því vel efni bóka áður en þið kaupið þær. Munið að hver er sínum gjöfum líkur. Ragnhciður Jónsdóltir: DÓRA í ÁLFHEIMUM \ j A & DÓRA í alihuvuTm RACiNHUUUR JONSUÓn IR Ragnheiður Jónsdóttir var einn fremsti unglingasagnahöfundur landsins á sinni tíð. Hér kemur í nýrri útgáfu önnur bókin um Dóru. Dóra í Álfheimum, prýdd teikningum eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Þetta er lifandi og skemmtileg saga um Reykjavíkurunglinga, gerist lýðveldisáriö 1944 og lýsir meðal annars hátíðinni á Þingvöllum. Jan Terlouw: FÁRVIDRI Fárviðri er þriðja bók þessa virta hollenska höfundar sem út kemur á íslensku, hinar voru Stríðsvetur og í föðurleit og seldust báðar upp. Fárviðri greinir frá raunverulegum atburði, afar mannskæðu flóði á Norðursjávarströnd Hollands og áhrifum þess á líf og hugsunarhátt fólksins. Þetta er spennandi saga, sögð af mikilli íþrótt, og jafnframt vekjandi og umhugsunarverð um ólíka afstöðu tveggja kynslóða. — Karl Ágúst Olfsson þýddi. Hreiðar Stefánsson: GRÖSIN í GLUGGIIÚSINU mmmmm E.W. Hildick: LIÐIÐ HANS LÚLLA Evi Boen.es: KITTA OG SVEINN Saga þessi gerist fyrir hálfri öld og ej^. raunsönn lýsing á lífsbaráttu þess tíma. Garðar er tíu ára og sendur í sveit til að létta á heimilinu. Það sumar verður reynslutími. — Hreiðar Stefánsson er löngu kunnur sem höfundur fjölmargra barnasagna. Hér hefur hann skrifað sögu sem hentar jafnt börnum sem fullorðnum og varpar skýru Ijósi á samfélag fyrri tíðar í landinu. Hver er Lúlli? — Stórkostlegasti mjólkurpóstur sem sögur fara af. Hvað er Liðið hans? — Það eru strákarnir sem vinna hjá honum. Og í Liðið komast færri en vilja. — Þetta er bráðskemmtileg saga eftir hinn vinsæla breska höfund , E.W. Hildick, hin þriðja á íslensku. „Hún er fyndin, atburðarásin er hröð og lífleg og persónur eru sérkennilegar og skemmtilegar.“ Vísir Enid Blyton Max Lundgren: ÆVINTÝRABÆKUR ÓLI KALLAR MIG LÍSU Ævintýrabækur Enid Blyton nutu einstæðra vinsælda á sjötta áratugnum og voru raunar lesnar upp til agna, jafnt af strákum sem stelpum. Hver man ekki Jonna og önnu, Finn og Dísu, að ekki sé talað um páfagaukinn Kíkí? — Nú eru þessar bækur að koma út aftur svo að ný kynslóð fær að kynnast sömu ævintýrunum og foreldrar hennar. Tvær bókanna komu í fyrra og nú bætast tvær við: Ævintýradalurinn og Ævintýrahafið. Fjöldi mynda eftir Stuart Tresilian. Sigríður Thorlacius þýddi. Saga eftir kunnan sænskan höfund, raunsæ lýsing á ungu fólki sem hefur gengið í hjónaband og eignast barn án þess að vera undir það búið að verða við kröfum samfélagsins. Lísa gerir upp hug sinn þegar Óli hefur horfið að heiman um skeið. Hvernig geta þau haldið áfram? Umhugsunarverð saga, „með henni er sérstök ástæða til að mæla.“ (Sig Helgason/Vísir). Helgi J. Halldórsson þýddi. Þetta er þriðja og siðasta Kittubókin eftir norska rithöfundinn Evi Bogenæs, en þær bækur hafa náð geysimiklum vinsældum. — Kitta og Sveinn búa í Osló og ungri stúlku er skákað inn til þeirra sem leigjanda. Brátt fer vinur Sveins að venja komur sínar á heimilið. Rómantísk og skemmtileg saga um ungt fólk á dimmum tímum. Andrés Kristjánsson þýddi. Anna-Greta Winberg: ÉG ER KÖLLUÐ NINNA Ninna býr með móður sinni. en faðir hennar dó áður en hún fæddist. Móðirin vill ekkert um fortíðina tala. Hvernig stendur á því? Ninna einsetur sér að kanna málið sjálf. — Völundur Jónsson Bræðraborgarstig 16 Sími 12923 og 19156

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.