Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 76
1. Sindbað og förunautar hans reru nú af alefli og kom-
ust brátt út á rúmsjó. Lentu þeir f stormum og hafgangi,
en voru loks svo heppnir að lenda við ey eina. Björguðust
þeir á land fullir fagnaðar. En sama kvöldið sáu þeir
voðalegan höggorm álengdar. Var hann álíka langur og
hávaxinn pálmaviður.
2. Sindbað komst upp í tré eitt, en höggormurinn þreif
annan förunaut hans í kjaft sér, skók hann hvað eftir
annað, sló honum niður og gleypti hann síðan. Kvöldið
eftir náði höggormurinn í hinn félaga Sindbaðs og fór
með hann á sömu leið. Sindbað var nær dauða en lífi af
hræðslu.
3. Ætlaði hann að steypa sér í sjó fram. En með því að
honum var Ijúft lífið, reyndi hann enn að forða sér. Bar
hann saman smáviði og þyrna og hlóð úr þéttan garð
umhverfis tré. Yfir það gerði hann þak úr trésvöndlum.
Þegar náttaði fór hann inn í vígi þetta.
4. Þegar rökkva tók, kom höggormurinn eins og hann
var vanur. Skreið hann kringum tréð, en komst eigi yfir
varnargarðinn. Var hann þar á kreiki til morguns. En
þegar eldaði aftur, leitaði hann burt. Sindbað hljóp þá í
dauðans ofboði niður til strandar, og ætlaði hann að
fyrirfara sér.
5. Þá kom honum óvænt hjálp. Hann sá skip alllangt
undan landi. Æpti hann nú af öllum kröftum og veifaði.
Það varð ekki árangurslaust, því að skipstjóri sendi bát
eftir honum, og var hann fluttur um borð í skipið. Tóku
skipverjar við honum tveim höndum og spurðu hann úr
spjörunum.
6. Sindbað sagði þeim frá ævintýrum sínum, og sam-
fögnuðu þeir honum að hafa sloppið úr svo mörgum
hættum og hræðilegum. Þá sáu þeir hinn voðalega
höggorm niður við ströndina og sigldu nú brott hið
bráðasta. Sindbað komst heim til sín heill á húfi, og lýkur
þar með sögunni.
72
Kjörorðið er: ÆSKAN FYRIR ÆSKUIMA