Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 20

Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 20
g-S-2 Saga handa litlu systkinunum Mummi haföi átt yndislegt jólakvöld; hann hafði fengið fjölda af Ijómandi fallegum gjöfum og hafði raöað þeim kringum rúmið sitt svo að hann gæti skoðað þær betur undir eins og hann vaknaði. En það allra besta sem Mummi hafði fengið að hafa með sér í rúmið og skoða áður en hann sofnaði, var hárauður bíll með svertingja í einkennisbúningi við stýrið. — Mummi hafði svo lengi óskað sér að eignast einmitt svoleiðis bíl og varð aldrei þreyttur á að skoða hann. En svefninn var í þann veginn að sigrast á honum þegar hann tók eftir nokkru skrýtnu, svo að hann glaövaknaði. Bílstjórinn bar höndina upp að húfunni, steig út úr bílnum og kom labbandi út á sængina. „Má ég spyrja?" sagði Mummi steinhissa, ,,ertu lifandi? Ég hélt að þú værir holur að innan og búinn til úr tveimur blikkþynnum." ,,Eins og stendurerég ekki úr blikki og ekki holur að innan,“ sagði svarti bílstjórinn og hló svo að skein í hvítar tennurnar, ,,og ef þú vilt láta svo lítið að draga bílinn upp þá skal ég sýna þér nokkuð skrýtiðl'Það lá við að það þykknaði í Mumma, því að þetta var hans bíll, en svo varð forvitnin yfirsterkari og hann náði í lykilinn í öskjunni og fór að draga bílinn upp. En hvað var nú að tarna? við hvern snúning sem hann sneri á fjöðrina þá sýndist honum bíllinn stækka og stækka, og þegar hann gat ekki snúið lyklinum lengur, var rauði bíllinn hans orðinn nærri því eins stór og bílarnir sem hann var vanur að sjá á götunum. Hann var nú farinn að hugsa um, að ekki gæti litli svertinginn stýrt svona stórum bíl, en ísama bili varð honum litið við og hvað haldið þið að hann sjái nema svertingjann, sem nú var orðinn eins stór og Mummi sjálfur. Þetta fannst honum þó skrýtnast af öllu! „Settu þig í bílinn, Mummi," sagði svertinginn, ,,og svo skulum við skreppa þangað sem ég á heima." Mummi tók lykilinn úr bílnum — hann hafði sem betur fór ekkert stækkað — og stakk honum í vasann á náttfötunum sínum til vonar og vara. Svo settist hann í bílinn og svertinginn settist við stýrið og bíllinn fór af stað. En þetta var skrýtinn bíll því að hann ók beint gegnum þilið og út á götuna og þegar þangað kom reisti hann sig á afturhjólunum og flaug eins og skot upp í loftið! Hann fór hærra og hærra, þarna fór hann yfir kirkjuturninn og nú var hann kominn út á sjó og bráðum sá hvergi til lands. En þetta gerðist svo fljótt að Mummi hafði ekki tíma til að verða hræddur. „Bráðum erum við komnir," sagði bílstjórinn og benti framundan sér — og þetta var víst satt, því að langt í fjarska sá Mummi hylla undir land. Og Mummi þóttist bráðlega viss um að þetta land hlyti aö vera Afríka því að nú sá hann móta fyrir pálmum, negrakofum úr sefi og öllu þessu, sem Mumma hafði verið sagt frá, að væri í Afríku. En nú varð bílstjórinn allt í einu svo angistarfullurá svipinn: ,,Æ, nú fór illa;“ sagði hann, ,,við hefðum átt að draga bílinn upp einu sinni á leiðinni til þess að vera vissir. Hafðu nú gát á þér því að nú hröpum við!“ Hann hafði varla lokið orðinu þegar Mummi varð þess var að bíllinn fór allur að ganga saman og varð ónotalega þröngur. Mummi snaraði sér út á aurbrettið en rann og hann hrapaði og hrapaði þangað til hann rakst á eitthvað mjúkt. Hann hafði orðið svo hræddur að hann lokaði augunum en nú opnaði hann þau aftur og sá að hann sat í laufkrónu efst í pálma — en allt í kring var hópur af svertingjastrákum. Þeir höfðu eiginlega átt að vera í skólanum en fannst miklu meira gaman að sitja uppi í pálmanum og róla sér. Þeir héldu að enginn gæti séð þá þarna sem þeir voru, en þegar Mummi kom þarna eins og þruma úr heiðskíru lofti ofan í hópinn þá urðu þeir lafhræddir og grenjuðu allir í senn af hræðslu. Og þetta heyrði negrakennarinn, sem var kominn á stjá að leita að strákunum sínum — og nú hristi hann pálmann svo hart, að allur hópurinn og þar á meðal Mummi datt ofan ísandinn. Mummi fann að hann hafði eitthvað hart í hendinni þegar hann datt — það var bíllinn, sem nú var ekki stærri en svo að hann gat haldið á honum í lófanum. Mummi hélt dauðahaldi um bílinn — hver veit nema hann gæti komið honum að gagni síðar. Negrakennarinn rak upp stór augu þegar hann sá Mumma. ,,Ég verð að fara með þig til kóngsins,“sagði hann. „Hans hátign er ólmur að ná í hvíta menn núna um jólin — hann segir að þeir séu svo góð tilbreyting í mat og honum þykir mannakjöt eins gott og þér þykir hangikjöt." Þetta var nú ekki efnilegt, en Mummi gat ekki sloppið undan, því að nú komu Verið daglega talandi auglýsing fyrir ÆSKUNA. 20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.