Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 55
4. Leggið álpappír (eða smjör-
pappír) innan í aflangt köku-
mót (sjá nr. 5 á mynd).
5. Hellið þunnu lagi af hrærunni
úr pottinum í botninn á mótinu,
svo sem 1 cm á þykkt.
6. Leggið kexkökur yfir kakólag-
ið (sjá 6).
7. Haldið þannig áfram þar til
mótið er fullt. Síðasta lag á að
vera kakó.
8. Látið kökuna kólna þar til hún
er alveg stíf. —
KANNTU BRAUÐ AÐ BAKA?
JÓLAKAKA
100 g smjörlíki
1 dlsykur
1 egg
3 dl hveiti
11/2 tsk. lyftiduft
1 /2 tsk. kardemommur
1/2 dl rúsínur eða döðlur (brytj-
aðar)
1 dl súrmjólk
Hrært deig.
Aðferð.
1. Láttu allt í hrærivélarskál.
Mundu að sigta þurrefnin,
brjóta egg í bolla og smjörlíkið
verður að vera lint.
2. Hrærðu deigið á lægsta
straumi í um 1 mín. Hreinsaðu
niður um barmana með
sleikju. Ath. að stöðva vélina á
meðan.
3. Auktu strauminn og hrærðu
deigið í 3—4 mínútur.
MARMARAKAKA
75 g smjörlíki
3/4 dl sykur
1 egg
2 1 /2 dl hveiti
1 tsk. lyftiduft
1 /2 tsk. vanilludropar
1 dl mjólk
2 tsk kakó Hrærtsaman
1 tsk. sykur með 1 /3 hluta
1 msk. vatn af deiginu.
Hrært deig.
Aðferð:
1. Hrærðu iint smjörlíki og sykur
þar til það er létt og Ijóst, 2 — 3
mín. Notaðu hrærivél eða
sósuþeytara.
2. Hrærðu egg saman við, 1/2
eða 1 í senn. Athugaðu að
brjóta eggin íbolla. Hrærðu vel
á milli í 1 —2 mínútur.
3. Sigtaðu saman mjöi, lyftiefni
og krydd.
4. Láttu þurrefnin saman við (öll
eða að hluta eftir stærð deigs-
ins) ásamt vökva og krydd-
dropum, einnig ávexti sem
kunna að vera notaðir.
5. Hrærðu deigið saman með
sósuþeytara eða sleif. Hrærðu
ekki deigið lengi, þá verður
kakan seig og þung.
6. Láttu deigið í smurt mót sem
aðeins má fylla að 2/3 hlutum.
7. Bakaðu deigið strax á neðstu
rim við 175 til 200°C. Bökun-
artími fer eftir stærð kökunnar.
8. Kakan er bökuð þangað til hún
er fallega gulbrún, byrjuð að
losna frá mótbörmum og
fjaðrar þegar þrýst er lítillega
ofan á hana með fingri.
9. Láttu kökuna standa í um 5
mínútur í mótinu áður en henni
er hvolft á grind.
51