Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 36
,******%.
Brunavarnir:
Eitt logandi kerti
getur kveikt í
Jólahátíðin er um það bil að ganga í garð og
vonandi fylgir henni ekkert nema ánægjan.
Hættur geta samt leynst í hverju horni, ekki síst
af eldi á þessum tíma árs, þegar rafmagns-
tækin eru öll á fullu og víða logandi kerti.
Við fengum Rúnar Bjarnason slökkviliðs-
stjóra til að segja okkur hvernig bregðast eigi
við ef eldur verður laus, hvers vegna kviknar
oftast í og ýmislegt fleira. Hann tók saman
grein fyrir okkur um þetta efni og fer hún hér á
eftir.
Rúnar Bjarnason slökkvistjóri
fræðir um brunavarnir.
Eldsvoði —
eldur sem hefur
orðið laus
Eldur er fyrirbæri sem við getum
yfirleitt stjórnað og ráðið við og sem
við höfum bæði gagn og gaman af.
t. d. kertaljós. En ef kertið kveikir í
gluggatjöldum verður eldurinn laus
og við missum stjórn á honum. Þann-
ig eldur kallast eldsvoði.
Við ætlum hér meðal annars að
reyna að útskýra hvernig eldsvoði
hefst og hvað á að gera til að koma í
veg fyrir hann. Auk þess munum við
læra hvernig á að slökkva eða hefta
útbreiðslu eldsvoða.
Því fyrr sem ráðist er til atlögu við
eldsvoða, því minni slökkvibúnað
þarf.
Reykur
Reykur er afleiðing eldsvoða.
Reykurinn er bæði föst óhreinindi og
hættulegar lofttegundir. Allur reykur
getur verið hættulegur sé honum
andað að sér.
Þeir sem farast í eldsvoða verða
lostnir skelfingu og tapa áttaskyni í
reyknum. Síðan kafna þeir vegna
súrefnisskorts eða reykeitrunar.
Reykur dreifist hraðar en eldur.
Reykur er léttari en andrúmsloft og
stígur því upp á við. Ef þið viljið verjast
reyk, takið þá blauta tusku, haldið
henni fyrir vitunum og skríðið út eftir
gólfinu.
I blöndu með andrúmslofti geta
reyklofttegundir sprungið. íbúð getur
þá á nokkrum sekúndum orðið eitt
eldhaf. Verið því varkár þegar dyr eru
opnaðar að herbergi þar sem eldur er
laus. Loftiö sem streymir inn í her-
bergið þegar þið opnið dyrnar getur
nægt til að óbrunnar lofttegundir
springi.
Hvenær og hvar
brennur mest?
Hættulegustu eldsvoðarnir byrja að
nóttu til milli kl. 24 og 6 að morgni. Þá
eru flestir sofandi og illkleift að upp-
götva eldsvoða í tæka tíð.
1. 37% af eldsvoðum byrja í stofu.
2. 22 % í eldhúsi.
3. 14 % í kjallara.
4. 13 % í svefnherbergi.
5. 14 % annars staðar.