Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 26

Æskan - 01.11.1981, Blaðsíða 26
ÞRÆLDÓMUR OG FLÓTTI Þegar skipstjórinn var að búa sig til næstu ferðar, þá vildi svo óheppilega til að hann tók sótt og andaðist, og fékk það Róbínson mikillar hryggðar. Stýrimaðurinn tók þá að sér stjórn skiþsins og réð Róbínson af að fara með honum. Þegar þeir voru komnir í námunda við kanarísku eyjarnar, þá var það einn morgun, að þeir sáu álengdar serkneskt sjóræningjaskip og stefndi það á þá fyrir full- um seglum. Þeir kostuðu alls að flýja undan, en sáu brátt, að allt af dró saman. Fyrir því bjuggust þeir til varnar og að nokkrum stundum liðnum sló í bardaga með þeim. Lengi vel skutust skipin á, svo ekki skar úr, en þó kom þar að lokum, að Serkir greiddu uppgöngu á hitt skipið og ruddust upp á þilfarið níutíu saman í hóp og hertóku það með öllu, sem á var. Þannig komst Róbínson á vald Serkja og var fluttur sem bandingi til hafnarborgarinnar Sale. Skipstjórinn sendi hina bandingjana upp í land, en Róbínson hélt hann sem heimaþræli sínum, því hann var ungur og liðugur í snúningum. Þó nú ekki hefði eins illa farið fyrir Róbínson og hann óttaðist í fyrstu, þá fannst honum samt frelsismissirinn óþolandi og var sí og æ að brjota heilann um það, hvernig hann ætti að strjúka burt úr ánauðinni. Nú minntist hann hinna spámannlegu orða föður síns, að hann mundi verða hinn aumasti maður og engan eiga að, þegar í nauðirnar væri komið. Nú voru liðin tvö ár, og hagaði þá svo til, að skipstjór- inn, lánardrottinn Róbínsons, var lengur heima en hann átti vanda til, því oftast var hann í víkingaferðum öðru hverju; nú var svo ástatt fyrir honum, að hann skorti peninga til að útbúa skip, og hafði hann um þessar mundir sér til afþreyingar að fara til fiskjar út á skipaleg- una svo að kalla daglega. í því snatti hafði hann Róbín- son með sér og dálítinn serkneskan svien, er Xúrý hét, og lét þá róa. Það var einhvern dag, er þeir voru á sjónum, að dimma þoku rak yfir þá. Af því að þeir höfðu ekki með sér átta- vita, þá villtust þeir og máttu hrósa happi, að þeir komust loksins að landi um kvöldið, bæði lúnir og svangir. Hús- bóndi Róbínsons hét því, að ekki skyldi hann oftar fara svo til fiskjar, að hann hefði ekki með sér vistir og átta- vita. Hann lét setja eldstó í bátinn og smíða í hann dálitla káetu svo lagaða, að úr henni mátti bæði stýra og haga seglum. í káetunni voru skápar til að geyma bæði flöskur með ýmsum drykkjum og matvæli. Einu sinni lagði skipstjórinn svo fyrir, að útbúa skyldi bátinn nægilega með matföngum til næsta dags, því hann hefði boðið nokkrum vinum sínum í skemmtiferð. Morguninn eftir voru bornar út í bátinn þrjár byssur með nægum skotfærum til þess, að þeir, sem yrðu í skemmtiförinni, gætu haft sér til gamans að skjóta sjó- fugla milli þess sem þeir voru að fiska. Skipstjórinn fór til Róbínsons, sagði honum að vinirnir mundu ekki koma 26 Sá góði boðskapur sem ÆSKAN hefur flutt frá fyrstu tíð hefur verið hollt viðurværi fyrir æsku landsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.