Æskan - 01.11.1984, Qupperneq 22
Sveinn Sæmundsson:
ÓR OG HLYNUR í FÆREYJU
í verðlaunaferð Æskunnar og Flugleiða
I UTVARPSHUSINU
í Miklagarði eru sem fyrr segir margar verslanir og þar
keyptu þeir hitt og þetta handa systkinum sínum, vinum og
vandamönnum.
Að versluninni lokinni var farið til Norðurlandahússins.
Norðurlandahúsið gegnir sama hlutverki og Norræna húsið
í Reykjavík. Það er byggt á mjög nýstárlegan máta. Er mun
stærra en Norræna húsið í Reykjavík og samkomusalurinn
þar er til mikillar fyrirmyndar. Þar er einnig veitingabúð og
bókasafn. Þarna voru tvær konur við vinnu í stóra salnum
og Hlynur og Snæþór stóðu og horfðu á. Konurnar brostu
til þeirra og spurðu hvort þeir væru virkilega frá íslandi. Þeir
svöruðu því til að þeir væru hér í stuttri heimsókn og hvað
þær eiginlega væru að gera? Þær sögðust vera að laga
tjöldin því hér ætti að fara fram leiksýning. Annars fara
leiksýningar fram í Sjónleikarahúsinu sögðu konurnar en
stundum er einnig leikið hér í þessum nýja og fallega sal.
Eftir að hafa gengið um Norðurlandahúsið og skoðað
það hátt og lágt var farið til Útvarpshússins sem stendur
aðeins örstuttfrá. í útvarpshúsinu hittu þeir útvarpsstjórann
Níels Júel Arge, sem er íslendingum að góðu kunnur. Níels
Júel Arge tók þeim vel og sýndi þeim aðstöðuna sem er til
fyrirmyndar. Nú stendur yfir tölvuvæðing hjá færeyska
útvarpinu og þá verða allar fréttir, tilkynningar og hvað sem
heiti hefur, sett inn á tölvuminni og geymt þar til síðari tíma.
Eftir góða næturhvíld að Hótel Foroyar tóku menn hraustlega til
matar síns við morgunverðarborðið.
Eftir að hafa skoðað Norðurlandahúsið héldu þeir Snse-
þór og Hlynur áfram að skoða Þórshöfn. Útvarpshúsið i
Færeyjum er aðeins fjögurra ára gamalt. Vinnuaðstaða
fyrir starfsfólkið er frábær og þótt ekki séu nema tuttugu
starfsmenn er miklu efni útvarpað frá þessum stað. Níels
Júel Arge hefur ef svo má segja byggt færeyska útvarpio
upp frá grunni og það er hans verk að Útvarpshúsið er
risið, svo myndarlegt sem það er. Hann fékk leyfi lands-
stjórnarinnar til þess að efna til happdrættis til byggin9ar
hússins og þannig hafa Færeyingar byggt sitt myndarlega
útvarpshús en margir hlustendur fengið drjúgan skilding
um leið.
Það var ákveðið að þeir Snæþór, Hlynur og Sveinn, sem
var fararstjóri, kæmu í útvarpsviðtal daginn eftir.
Þeir fóru víða um Þórshöfn það sem eftir var dagsins en
síðan var haldið heim á Hótel Föroyar. Snæþór, sem a
heima í Möðrudal á Fjöllum hafði að sjálfsögðu mikið vit 3
sauðfé og honum þótti kindurnar í Færeyjum furðulegar a
að líta. Þær eru háfættar og allt öðruvísi en þær íslensku-
Flestar mórauðar, gráar eða flekkóttar en örfáar hvitar.
Þær voru allt í kringum hótelið og þar sem gluggarnir voru
rétt niður við jörð komu þær og gerðu sig heimakomnar vio
hótelgluggana. Ekki var samt mikið ónæði af greyjunum Þvl
þær jörmuðu sjaldan og voru mun þöglari en kollegar
þeirra íslenskir.
Billjardstofan á hótel Föroyar varð þeim Snæþóri og
Hlyni mikið skemmtiefni. Þeir horfðu hugfangnir á gestina
spila þarna billjard og þegar þeir hættu tóku þeir félagarmr
við. Þeir höfðu aldrei spilað þetta áður en fundu út hvaða
reglur mundu gilda um spilverkið og höfðu mestu skemmt'
un af. Þeim fór líka fljótlega fram í listinni og rauða kúlan
sendi þær hvítu snarlega niður eftir að þeir hófu leikinn
Veðrið hafði batnað eftir því sem á daginn leið og ujj1
kvöldið kom sólskin. Þeir ákváðu að taka afturtil við billjarC)'
spilið næsta kvöld ef færi gæfist, ekki var ráð að ganga
seint til náða því að næsti dagur mundi verða mjög anna'
samur.
HEIMSÓKN í KIRKJUBÆ
Hlynur hafði stillt klukkuna hjá þeim Snæþóri þannig aCj
hún hringdi klukkan hálf níu um morguninn. Þeir voru sam
vaknaðir örstuttri stund áður en klukkan hringdi enda var
bjart og gott veður úti og morgunninn lofaði góðum degr
22