Æskan

Árgangur

Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 35

Æskan - 01.11.1984, Blaðsíða 35
Hvað ætlar þú að gera í jólaleyfinu? Þegar þetta blað kemur fyrir sjónir lesenda eru jólaleyfi að hefjast í grunnskóium landsins. Áreiðanlega hafa margir beðið leyfisins með óþreyju, ekki þó endilega af því að skólinn sé þreytandi á stundum heidur vegna þess að jólun- um fylgir viss stemning, viss hátíðleiki sem lætur síst börnin ósnortin. Oft hefur verið haft á orði að jólin séu hátíð barnanna og það eru líklega orð að sönnu. Hvað ætlar þú að gera í jólaleyfinu? Þessa spurningu lögðum við fyrir nokkra krakka, sem við hittum á förnum vegi í Reykjavík, í byrjun mánaðarins. Fer kannski til Seyðisfjarðar Stella Rut Axelsdóttir er í 6. bekk Árbæjarskóla. Hún kvaðst hlakka mikið til jólafrísins. „Ég ætla að leika mér á skautum og skíðum,“ sagði hún. „Ætli ég vaki ekki lengi frameftir við lestur bóka og leiki við vinkonurnar,1' hélt hún áfram. Stella Rut er nýflutt til Reykjavíkur. Áður átti hún heima á Seyðisfirði. Þegar viðtalið var tekið var það ekki ákveðið hvort fjölskylda hennar dveldi á Seyðis- firði um jólahátíðina eða yrði í Reykjavík. - í hvað langar þig mest í jólagjöf? spurðum við. Stella Rut var ekki í vafa um það. Stella Rut „Skíði," svaraði hún að bragði. Við spurðum hana næst hvaða mat hún borðaði á aðfangadag. „Við borðum alltaf rjúpur, þær eru bestar. Pabbi veiðir þær oftast sjálfur." - Farið þið til kirkju á jólunum? „Stundum, já. Mér finnst það mjög hátíðlegt." - Veistu af hverju við höldum jól? „Auðvitað!" Stella Rut var auðheyrilega hneyksluð á spurningunni. „Jesús fæddist á jólunum," bætir hún við. - Hvernig er það, ætlar þú að gefa vinkonum þínum jólagjafir? „Já, ég býst við því.“ Við spurðum hana að lokum hvort hún héldi að hún fengi gjafir frá þeim. „Já, ætli það ekki,“ svaraði hún. Hanna Sólrún Langar mest í skíðaútbúnað Hanna Sólrún Antonsdóttir er vinkona Stellu Rutar og jafngömul henni. Hún kvaðst líka hlakka mjög mikið til jólaleyfisins. „Síðustu jól höfum við verið hjá ömmu minni í Ölfusi," útskýrði hún. „En núna er amma mín flutt í bæinn og þess vegna verðum við bara heirna." - Fannst þér gaman að vera í Ölfusi um jólin? „Já. Ég lék mér á skíðum og skautum, lék við hundana og svo komu margir í heimsókn." 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.