Æskan - 01.11.1984, Síða 41
Spýturnar sjö
Spurt um söngvara
Duran Duran
Kæra Æska.
Ég er hér einn Duran Duran að-
dáandi og langar að spyrja þig
eins. Getur þú frætt mig um hvað
Simon le Bon, söngvari hljóm-
sveitarinnar, er gamall? Hvenær
hann er fæddur nákvæmlega?
Með kveðju,
Árni Fannar Björnsson, 10
ára.
Svar:
Simon le Bon (skírður Simon
John Charles) fæddist 27. október
1958 í Englandi og er því 26 ára.
Aðdáendaklúbbar
Ágæti Æskupóstur
Hver eru heimilisföng aðdáenda-
klúbba Nenu, Paul MacCartney,
Shakin Stevens og Queen?
Með fyrirfram þökk,
Jónsteinn B. S.
Svör:
Nena,
1801 Century Park West,
Los Angeles,
California,
U. S. A.
Paul McCartney,
PO Box 4UP
London W1A,
England
Shakin Stevens,
Bull Hill Cottage,
Hawstead,
Nr. Bury St. Edmunds,
Suffolk, England
Queen,
46 Pambridge Road,
London, W11
England
Faðir nokkur átti sjö sonu, og
kom þeim illa saman. Þras þeirra
og rifrildi gerði þá hirðulausa um
það sem þeir áttu að gera. Faðir
þeirra, sem var mesti heiðursmað-
ur, hafði lengi tekið eftir þessu, og
fékk það honum áhyggju. Einn dag
kallar hann þá alla á fund sinn og
leggur fyrir þá sjö spýtur, fastlega
samanbundnar í knippi og segir:
„Hverjum ykkar, sem getur mölvað
þetta spýtuknippi í sundur, skal ég
gefa hundrað ríkisdali."
Bræðurnir þreyttu nú á þessu
aflsmuni sína, hver eftir annan, en
allir jafnt fyrir gýg: „Það er bráðó-
mögulegt", sögðu þeir allir. „Nei,
ónei“, sagði faðirinn, „ekkert er
auðveldara". Þá leysti hann sundur
knippið og mölvaði síðan hæglega
hverja spýtuna eftir aðra. „Já með
þessu móti“, gullu við allir synirnir,
Gordíonshnúturinn
Hnúturinn sem ómögulegt er
að leysa er gerður svona. Maður
bregður bandinu þrívegis um
höndina á sér (sjá A), síðan þrí-
„þá er það reyndar hægðarleikur,
þetta getur hvert barn gert“.
En faðirinn tók þannig til orða:
„Svona fór nú með spýturnar, synir
mínir, en gætið þess að ekki fari
eins fyrir ykkur, því hér er líkt á
komið. Svo lengi sem þið eruð sátt-
ir og haldið hóp sem einn maður,
mun enginn yfirbuga ykkur, en ef
einingarbandið slitnar, sem á að
halda ykkur saman, þá munuð þið
fá sömu afdrifin eins og þessar
spýtur, sem liggja hér brotnar fyrir
fótum okkar.
(Úr Lestrárbók Þórarins Böðvars-
sonar).
vegis utan um A (sjá B) og loks
þrívegis utan um B (sjá C) og að
lokum hnýtir maður lokahnútinn
(D). Maður heldur um D með vísi-
og þumaifingri vinstri handar, en
dregur svo hnútinn saman með
því að toga í hinn endann, þang-
að til hann verður eins og mynd-
in að neðan sýnir. Ef maður svo
dýfir hnútnum í vatn þá er
ómögulegtj að leysa hann.
41