Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1984, Page 43

Æskan - 01.11.1984, Page 43
íífrMvVÍiriði*®! Hafurinn í speglinum Geitin er mjög nægjusamt dýr. Hún er jórturdýr. Geitin erfjalladýr, en er víða tamin vegna mjólkurinnar. Víða eru tamdar geitur tjóðraðar á beit, því að þær eru rásgjarnar í haga og éta og spilla í kálgörðum, ef þær eru sjálf- ráðar. í Asíu eru angorageitin og Kashmirgeitin, sem báðar eru tamdar vegna ullarinnar. Úr ull af þessum geit- um eru gerð dýrindis sjöl og dúkar. Náskyld okkar geit er steingeitin í Alpa- fjöllum og antílópurnar f hitabeltinu, sem lifa þar oftast í stórum hópum. Matthías geithafur átti heima á bóndabæ einum í Vermlandi í Svíþjóð. Hann var mjög göfugur herramaður, eða það áleit hann sjálfur. Hann þóttist vera miklu meiri en öll hin dýrin á bæn- um, og það var af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi var það af því, að Páll litli, elsti sonur húsbóndans, átti Matthías. Og í öðru lagi vegna þess, að Matthías fékk alltaf að ganga laus og ótjóðraður. En allar hinar skepnurnar á bænum voru bundnar á dreif alla daga. Sú eina vinna, sem Matthíasi var ætl- uð, var að draga litla vagninn með Páli. En það var ekki svo ýkja mikið erfiði fyrir Matthías, því að hann réð sjálfur, hve hratt hann fór. Mesta yndi Matthíasar var að gleðj- ast yfir ættgöfgi sinni. Hann gat rakið ætt sína í beinan karllegg alla leið aftur til villigeitanna, sem á löngu liðnum tíma áttu heima í suðlægum fjalla- löndum og klifruðu þar og hoppuðu um klettastallana. Nei, það voru ekki marg- ir, sem áttu jafn göfugt ættartal og Matt- hías hafur, enda var hann reglulega hreykinn yfir því. Já, svona var nú það, og Matthías geithafur gekk um túnið og heima við bæinn eftir eigin vild og geðþótta. Það var um miðdagsleytið, fólkið á bænum hafði nýlokið við að borða, og nú höfðu allir tekið sér miðdagsblund. Þess vegna hindraði heldur enginn Matthías í að fara, hvert sem hann vildi. Dyrnar á íbúðarhúsi fólksins stóðu opn- ar í hálfa gátt, því að hiti var á og glaða sólskin. Matthías læddist heim að hús- inu. Hann fór mjög gætilega, því að hingað var hann ekki vanur að koma. En reyndar hafði hann þó lengi langað til þess. Hann áleit, að híbýli mannanna hlytu að vera mjög einkennileg, og að gaman væri að rannsaka þau nákvæm- lega. Nú var hann kominn að útidyrahurð- inni. Hann rak snoppuna inn í dyragætt- ina, svo ýtti hann sér inn og stóð loks í forstofunni. Fyrst hélt hann að gólfið í forstofunni væri grasi vaxið, því að það var grænt eins og túnið úti. En þegar hann athugaði það betur, sá hann, að á gólfinu var þykkur grænleitur dúkur, sem var mjög þægilegur að ganga á. Á veggjunum héngu yfirhafnir, hattar og húfur. En Matthías vildi skoða fleira. Hurðin inn í stofuna var ólæst. Matthías ýtti hornunum í hurðina, og þarna stóð hann hnarreistur á stofugólfinu. En þetta var það ergilegasta, sem fyrir hann hafði komið. Hann var ekki einn inni í stofunni. Beint fyrir framan hann stóð annar hafur. Matthías stóð kyrr og stappaði með öðrum framfætinum í gólfið, og hinn hafurinn var svo dóna- legur að stappa líka öðrum sínum fram- fæti í gólfið. Matthías gekk þrjú skref aftur á bak, og um leið gekk hinn hafur- inn líka þrjú skref aftur á bak. Matthías hristi höfuðið, og hinn hafurinn apaði það líka eftir honum. Það leyndi sér ekki, að þessi hafursóþokki gerði ramma gys að honum og hermdi eftir honum allt, sem hann gerði. Þetta var annað og meira en Matthí- as vildi þola þessum hafri þarna. Hér skyldi verða stiginn nýr og alvarlegri dans. Hann skyldi reka þennan angur- gapa og dóna út úr stofunni. Matthías gekk fimm skref afturábak, svo beygði hann niður hálsinn, hristi höfuðið, miðaði á andstæðinginn og renndi sér svo á hann með öllu sínu afli, og glerbrotin hrundu á gólfið með hávaða og bramli. Það varð ógurlegt uppþot í húsinu. Fólkið vaknaði af sætum miðdags- svefni og þusti inn í stofuna. Matthías geithafur var rekinn út og hýddur að auki. En það var nú reyndar óréttlátt, því að hann, aumingja hafurinn, hafði aldrei staðið frammi fyrir spegli áður, og þess vegna gat hann ekki vitað, að það var aðeins myndin af honum sjálf- um i speglinum, sem hann hafði verið að berjast við. En upp frá þessum degi áræddi Matthías aldrei að fara inn í íbúðarhúsið aftur. Og geiturnar rykktu í tjóðurbandið og brostu í skeggið hvertil annarrar, þegar Matthías gekk fram hjá þeim. Og sjálfur var hann ekki lengur jafn viss um það og áður, að hann væri svo miklu göfugri en öll hin dýrin á bænum. 43
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.