Æskan

Volume

Æskan - 01.11.1984, Page 60

Æskan - 01.11.1984, Page 60
Það var indæll júnídagur. Við suðurhlið bílgeymslunnar stóðu villtar rósir í blóma. En inni í bíl- geymslunni var litli Austin bíllinn. Honum dauðleiddist. í fimm ár hafði hann ekki verið tekinn út. Þarna stóð hann á trédrumbum. „Ég vildi að einhver kæmi,“ hugs- aði litli bíllinn og andvarpaði. Bíl- eigandinn Bang og kona hans komu og sóttu reiðhjólin sín. „Nú fá hjólin að fara út,“ hugsaði bíllinn. „Ég verð að hírast hér mán- uðum saman og horfa á lokaðar dyr.“ Frú Bang mælti: „Það þarf að hleypa góðu lofti inn í bílgeymsl- una. Við skulum láta dyrnar vera opnar." Nú gat Austin bíllinn horft út í garðinn og út á götuna. Það var betra en ekkert. En þó ekki full- nægjandi. „Ég vildi að ég hefði einhvern að tala við,“ hugsaði bíllinn. „Piv,“ heyrðist sagt í einu horni bílgeymslunnar. Bíllinn spurði: „Er einhver þarna?“ „Það er bara ég,“ var svarað. „Hver er ég?“ sagði bíllinn. „Jakob mús. Ég er búinn að grafa mig inn í gegnum hornið. Þú býrð í ágætu húsi.“ Bíllinn svaraði: „Húsið er ekki vont. En ég er nú búinn að fá nóg af því. Ég hef ekki komið út í fimm ár.“ „Hvers vegna?" spurði Jakob mús. „Hvers vegna?“ át bíllinn upp eft- ir honum með beiskju í röddinni. „Sérðu ekki að ég stend á kubbum?" „Eru það þessir?" spurði Jakob mús og fór að naga annan þeirra. „Hættu, hættu," mælti bíllinn hryssingslega. „Þú kitlar mig allan. Segðu mér heldur frá því, sem er að gerast í heiminum." „Já, það skal ég gera. Bölvaður kötturinn elti starraunga í gær, frændi minn fann ostskorpu á bak við sorptunnuna í gærmorgun, og ----þú verður að fyrirgefa, köttur- inn er að koma. Ég fer í snatri." Og Jakob mús þaut burt. Stór svartur högni kom inn. Hann mælti: „Hefur þú ekki séð mús hér fyrir skömmu?“ Kötturinn var mjög vingjarnlegur. „Hm, nei, ekki minnist ég þess,“ svaraði bíllinn. Honum geðjast illa að köttum, vegna þess að þeir rifu sæti bíl- anna með klónum, ef þeir komu því við. Þeir höfðu framið þennan þjösnaskap á bílnum sjálfum. „Jæja,“ sagði högninn og settist þar sem sólrákin lék um hann. En sólin skein inn um dyrnar. Kisi mælti: „Hér stendur þú alltaf, og getur ekki hreyft þig.“ Bíllinn þagði. „Mér geðjast ekki að bílum,“ sagði kötturinn. „í sama bili og ég er að því kominn að veiða feitan spör, sem situr á þjóðveginum og plokkar æti úr hrossaskít, kemur bíll þjótandi og fælir fuglinn á braut. Svei. Þetta er óþolandi. En þér verður aldrei ekið framar. Þú ert allur ryðgaður." Kötturinn var ánægður yfir því, það var auðheyrt á röddinni. í sama bili heyrðust skruðningar úti fyrir, og stór hundur kom þjót- andi. „Það kemur hundur,“ öskraði kötturinn og þaut að svo mæltu upp á þak bílsins. Kötturinn sat þar og hvæsti. En hundurinn stóð og gelti. Austin bíllinn titraði á trjákubbun- um. Hann kallaði á köttinn: „Farðu strax niður af þakinu. Ég vil ekki hafa þig þarna.“ „Hundurinn étur mig, ef hann nær mér,“ svaraði kötturinn aumingjalega. Bíllinn mælti. „Það væri enginn skaði skeður þó að svo yrði.“ En kisi vildi ekki láta éta sig. Hann tók undir sig stórt stökk alla leið út í garð. Hundurinn hljóp á eftir en kom skömmu síðar inn til bílsins og mælti: „Ég missti köttinn. Hann sleppur alltaf. Þú stendur alltaf kyrr.“ Hund- urinn talaði vingjarnlega. Hann var ekki kaldhæðinn eins og kötturinn. „Já,“ svaraði bíllinn og andvarp- aði svo hann lyftist lítið eitt. „En stundum, í fyrri daga, óskaði ég þess að þurfa ekki að fara jafn margar ferðir og ég neyddist til. Fjölskyldan ók mér afar oft þá og börnin létu ekki vel. Þau gátu aldrei verið kyrr, en hoppuðu á sætunum og létu öllum illum látum. Það brak- aði í mér. En nú þrái ég að komast út í eitthvert ferðalag." „Hvers vegna er þér ekki ekið?“ spurði hundurinn. „Það er stríðinu að kenna,“ svar- aði bíllinn ólundarlega. „Stríðinu að kenna," endurtók hundurinn. „Það er langt síðan styrjöldinni lauk. Ég hef heyrt mennina segja frá því. Þeir hafa sagt að fleiri bílum sé nú ekið eftir veginum en áður.“ „Er stríðinu lokið?“ sagði bíllinn, „og fleiri bílum ekið en fyrr?“ hróp- aði hann mjög forviða. Hundurinn svaraði: „Já, þarna fer einn gulur eftir veginum.“ „Ég vil fara út,“ sagði bíllinn og reyndi að hoppa niður af trjádrumb- unum, en gat það ekki. „Æ, ó,“ mælti bíllinn. Hundurinn mælti: „Ertu veikur? Er þér illt í maganum?" Það var meðaumkun í röddinni. „Mér er alls staðar illt,“ svaraði bíllinn. „Kælirinn er ryðgaður, leg- urnar þurrar o.s.frv. Ég vil fara út. En hvernær gerist það?“ Hundurinn svaraði með sigur- vissu: „Jú, þú kemst út.“ Að svo mæltu fór hann út og í gegnum skarð, er var í girðinguna. 60
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.