Æskan - 01.06.1994, Page 25
BRÆÐUROG
RÓSIR
Kæri Æskupóstur!
Mig langar aö bera fram
tvær spurningar:
1. Hvernig er best að
þurrka rósir? Ef maður
hengir þær bara upp
skreppa þær saman.
2. Getur þú sagt mér
nöfn Baldvins-bræðra
(William Baldwin, Alec
Baldwin o.fl.) og annað
hvort birt myndir af þeim
eða sent mér þær?
Ég vil þakka skemmti-
legt og vandað blað.
Aðdáandi.
Svar:
1. Þessar upplýsingar
fengum við hjá starfsfólki
í blómabúðum:
Best er að láta rósirn-
ar springa fallega út og
hengja þær til þerris áður
en þær „hneigja höfuð“.
Þær þurfa að vera á þurr-
um stað. Sól má ekki
skína á þær því að þá
upplitast þær. Varast
skal að láta nokkuð
þrengja að þeim.
2. Við vitum ekki um
aðra en þá tvo - en ósk-
um eftir upplýsingum
fróðra lesenda.
TUNOUMÁLA-
TÖLVUR
Kæra Æska!
Mig langar til að vita
hvar hægt er að frá tungu-
málatölvur, hverjar eru full-
komnastar, þ.e.a.s. hafa að
geyma flest tungumál og
flest orð, og hvað þær
kosta.
X??
Svar:
Við hringdum í nokkrar
tölvuverslanir. í einungis
einni þeirra fæst slíkt
tæki, Radíóbúðinni við
Skipholt í Reykjavík. Það
hefur að geyma 3000 orð
á sjö tungumálum og
kostar 8.700 kr.
Vænta má að tungu-
málatölvur séu til í fleiri
verslunum. Á gulu blöð-
unum í atvinnuskrá síma-
skrárinnar má finna dálk-
inn, Tölvur og tölvubún-
að, á bls. 400 ...
HEIMILISFÖNCj
OC FÆÐINÚAR-
DA6AR
Sæll Æskupóstur!
Ég sendi þér lista yfir
heimilisföng nokkurra að-
dáendaklúbba og fæðing-
ardaga frægs fólks...:
Jonathan Brandis Fan
Club,
11684 Ventura Blvd.,
Suite 909,
Studio City, CA 91604,
Bandaríkjum
Norður-Ameríku.
Take That Fan Club,
P.O.Box 538,
Manchester M60 2DX,
Englandi.
Burt Reynolds, c/o I.C.M.,
8942 Wilshire Blvd.,
Beverly Blvd.,
CA 90211,
Bandaríkjunum.
19.3. 1953: Bruce Willis
3.9. 1965: Charlie Sheen
23.12. 1971: Corey Haim
24.9. 1969: Erika Eleniak
28.8. 1969: Jason Priestley
12.2.1954: John Travolta
11.10.1966: Luke Perry
Hanna Kristín.
Við endurtökum þakk-
ir, Hanna Kristín. Fyrri
hluti upplýsinganna var
birtur í 5. tbl. Æskunnar
1994 ábls. 24.
PÁLLÓSKAR
-OC AÐRIR
VINSÆLIR
Elsku besta Æska!
Ég er mikill aðdáandi
Páls Óskars! Gætir þú ekki
fengið hann til að lána þér
gamlar myndir af sér í þátt-
inn, í mörgum myndum?
Mér finnst þú alveg frá-
bært blað!
Sólblóm.
Kæra Æska!
Viltu birta viðtal við Plá-
hnetuna og veggmynd af
henni - og kannski viðtal
við Pál Óskar, hann einan
eða með Milljónamæring-
unum, af því að það hefur
aldrei verið viðtal við
hann/þá.
Þökk fyrir gott blað.
Pláhnetuaðdáandi.
Sæl, Æska!
Er hægt að birta vegg-
mynd af Páli Óskari eða
hljómsveitinni Bong eða
viðtal?
Með fyrirfram þökk,
Ása og Karí.
Svar:
Páll Óskar svarar að-
dáendum sínum í þessu
tölublaði - og birtist í
mörgum myndum, t.a.m.
á veggmynd ásamt Millj-
ónamæringunum.
Pláhnetan hefur verið
á veggmynd (7. tbl. 1993).
í 10. tbl. 1993 var viðtal
við Stefán Hilmarsson.
Við segjum væntanlega
síðar frá hljómsveitinni.
í HVERJUM
MÁNUDI
Þökk fyrir frábært blað!
Ég les Æskuna spjaldanna
á milli. Ég vildi að hún
kæmi út í hverjum mánuði
en ekki annan hvern mán-
uð.
Mér finnst teiknimynda-
sagan Eva og Adam alveg
æðislega skemmtileg.
Þura.
Svar:
Þakka þér fyrir bréfið,
Þura! Raunar kemur
Æskan nú út níu sinnum
á ári. Um skeið voru gef-
in út tíu tölublöð. Aldrei
er að vita nema þeim
verði fjölgað aftur.
LISTAKONA
Kæri Æskupóstur!
Ég er tólf ára og á stórt
safn af listaverkum. Ég er
skapandi að eðlisfari og vil
nú fá að tjá mig fyrir fram-
an heiminn. Ég vinn úr tré,
plöntum, beini, vaxi, stein-
um, leir og hör.
En hvað á ég að gera til
að koma mér fram á sjón-
arsvið íslendinga?
Ég ligg oft á næturnar
andvaka og hugleiði þetta.
Ég sem líka Ijóð. Ekki
merkileg en táknræn.
Hjálpaðu mér!
Vertu frjáls!
Taktu óhræddur til máls!
Gerðu það sem þú vilt.
Það erþað eina sem er gilt
í nútímanum núna.
Haltu fast í trúna!
L.I.J.
Svar:
Þú ættir að leita til
myndmennta- eða hand-
íðakennara og láta meta
verk þín. Hann getur þá
væntanlega bent þér á
leiðir. Þú getur líka farið
Æ S K A N 2 5