Æskan - 01.06.1994, Síða 38
/
Norðmenn um Svía:
A
Svíi hafði keypt sér nýja skó.
Afgreiðslustúlkan varaði hann
við:
„Þeir gætu þrengt að tánum
fyrstu dagana."
„Það er allt í lagi. Ég ætla ekki
að nota þá fyrr en eftir viku ..."
Svíi nokkur fór á ísfiskveiðar og
kom heim með 790 tonn af
ísklumpum ...
„Veistu hvernig Svíar telja
peninga?"
„Nei..."
„Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm
og einn í viðbót, og einn í viðbót
...!“
A
- Hefur þú heyrt um Svíann
sem færði húsið sitt um tvo metra
til að strengja þvottasnúruna sem
var fest milli þess og staursins?
- Eða þann sem heimtaði að
fá að skipta hálsbindinu af því að
annar endinn væri lengri en hinn?
Og um sjálfasig:
A
Norðmaður, Svíi og Dani
hugðust synda til Ameríku. Sví-
inn komst nokkrar mílur áður en
hann gafst upp. Daninn synti
hálfa leið en varð þá að gefast
upp. Norðmaðurinn synti þar til
hann sá til lands. Þá sagði hann:
„Nú er nóg komið. Ég hef séð
Ameríku!"
Síðan sneri hann við og synti
heim!
A
„Þú átt að reikna þrjár blað-
síðurfyrir morgundaginn!"
„Æ, aumingja pabbi...“
„Þú lítur ósköp illa út!“
„Já, ég borðaði þvottaefni.“
„Hvers vegna í ósköpunum?"
„Ég las á pakkanum að efnið fjar-
lægði fitu.“
A
Maður nokkur bað um gist-
ingu í hóteli í Afríku en var sagt
að það væri einungis fyrir svert-
ingja. Hann fór þá í verslun,
keypti skóáþurð og sverti sig í
framan. Bragðið heppnaðist.
Hann fékk ágætt herbergi og bað
afgreiðslumanninn að hringja til
sín kl. sjö.
Hann var vakinn á réttum
tíma. Þegar hann kom í lestina
fór hann inn á salerni til að þvo
af sér litinn. En það tókst ekki
hvernig sem hann nuddaði. Þá
rann upp fyrir honum Ijós.
Starfslið hótelsins hafði vakið
vitlausan mann!
A
Presturinn horfði alvarlegum
augum yfir söfnuðinn og sagði:
„Þegar ég sé alla koma akandi
hingað á dýrum bílum spyr ég
mig:
„Hvareru þeir fátæku?“
En ég hlýt að spyrja annarrar
spurningar þegar ég lít í söfnun-
arbaukinn eftir messuna:
„Hvað varð af öllum þeim
ríku?““
A
„Af hverju ertu svona reiður,
Palli?“
„Af því að það fer svo mikið
fyrir Pésa í rúminu?"
„Hann má hafa helminginn.
Tekur hann meira pláss?“
„Nei, en hann heimtar að hafa
sinn helming í miðju rúminu!"
A
Á bókasafninu:
„Ég fann hundrað krónur í
þessari bók. Áttu fleiri eftir sama
höfund?"
A
Viðskiptavinur: Ég þarf að
kvarta!
Kaupmaður: Nú, hvað er að?
Viðskiptavinur: í gær keypti
ég rækjusalat hjá þér en ég fann
ekki eina einustu rækju í því!
Kaupmaðurinn: Hvað með
það? Hefur þú nokkurn tíma
fundið ítala í ítölsku salati?
„Af hverju er litli bróðir þinn
að gráta?"
„Af því að hann fékk ekkert af
sneiðinni minni."
„Hann átti sína kökusneið..."
„Já, já. En hann grenjaði líka
þegarég borðaði hana!“
A
„Gjörðu svo vel! Hér eru
svefntöflurnar. Þetta ætti að duga
í sex vikur."
„Hvað segirðu, maður! Ég hef
ekki tíma til að sofa svo lengi!"
A
„Dóttir mín er bara þriggja ára
en hún kann að lesa nafnið sitt
afturá bak!“
„Það kalla ég gott. Hvað heitir
hún?“
„Anna.“
A
„Þessi kona hefur orðið að
þola mikið fyrir trú sína.“
„Skelfing er að heyra þetta!“
„Já, hún trúir því að hún eigi
að nota skó númer 36!“
A
„Af hverju þurfum við að læra
ensku, kennari?"
„Spurðu ekki svona, Högni
minn! Það er ótalmargt fólk í
heiminum sem talarensku og ...“
„Já, er það ekki orðið alveg
nógu margt?“
A
„Heldur þú að til séu fljúgandi
diskar?"
„Já, ég er ekki í neinum vafa
um það.“
„Hefur þú nokkurn tíma séð
fljúgandi disk?“
„Já, marga! En það er orðið
langt síðan. Það var áður en við
kona mín skildum. Hún var afar
skapheit..."
„Takið á, drengir! Annars komumst við ekki á loft!“
3 8 Æ S K A N