Æskan - 01.06.1994, Blaðsíða 44
Titíll: Egg 94
Flytjendur: Ýmsir
Egg 94 er fyrsta alvöru metnaðarfulla
íslenska tölvupopps-safnplatan. Hér er
ekkert niðursoðið danspopp heldur eins
konar „minimalískt nýaldarsveim". Hug-
urinn hvarflar líka til þýskra frumherja á
borð við „Tangerine Drearn" og „-
Kraftwerks" og Bretans Roberts Wyatts.
Ajax og T-World hefja plötuna til flugs
af yfirvegun hinna gamalreyndu. Við af
þeim taka Svala Björgvinsdóttir (Scope)
og „Underground Family“. Þau eru einu
syngjandi tölvupopparar Eggsins og Ijá
plötunni æskilegan fjölbreytileik. í öðru
lagi U.F. er kryddað með ekta rabbsöng.
Lög hinna ellefu flytjendanna lúta öðr-
um lögmálum. Stígandi og draumkennd
sveimstemming er takmarkið. Grípandi
laglínur myndu einungis trufla.
Meðallengd laganna þrettán er hálf
sjötta mínúta. Fæst eru þau teygð um of.
Leiðinlegt er að sjá flytjendur nefna
sig og lög sín upp á enskan móð. Lagið
Tungl 12 með Kusum er ánægjuleg und-
antekning. Þar er jafnfrant um eitt
sterkasta lag plötunnar að ræða, ásamt
lögum Ajax, T-World og Spacemann
Spliff.
Vegna sérstöðu sveimpoppsins er
ekki hægt að brúka hefðbundna ein-
kunnagjöf. Þess í stað fær það eina
heildareinkunn, 6,0.
Titill: Bíódagar
Flytjendur: Ýmsir
Á Bíódaga-plötunni eru 15 lög úr
samnefndri kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar. Aðeins titillagið er nýtt. Hin
eru gamlir, sívinsælir slagarar, þar af
fjórir með erlendum flytjendum.
Þetta eru allt góð og merkileg lög, að
undanskildu lagi Roys Rogers. Það er
frekar lélegt. En það er ómissandi í sam-
hengi við myndina.
Lag 12. septembers, Blikandi haf,
minnir á sterka stöðu templara í
skemmtanalífi fyrri áratuga. Lagið er úr
danslagakeppni templara. Hún var há-
punkturinn í dægurlagaheimi þess tíma.
Þátttakendurnir urðu sjálfkrafa helstu
stjörnur landsins.
Fram til þessa hefði engum dottið í
hug að Blikandi haf, Allt á floti, Vorkvöld
í Reykjavík og hin íslensku lögin ættu
eftir að lenda á safnplötu með fyrsta
þungarokklaginu, „You Really Got Me“
með Kinks og hinu fræga „House of The
Rising Sun“ með Animals.
Merkilegt er að titillagið hans Bubba
gefur þessum gömlu perlum ekkert eftir.
Það er grípandi, þróttmikið og ferskt.
Texti hans stingur ekki heldur í stúf
við gömlu textana sem eru mun skárri en
dæmigerðir íslenskir dægurlagatextar
síðasta aldarfjórðungs.
Heildarútkoman er þægileg og fjöl-
breytt fjölskylduplata sem á eftir að lifa
lengur en lunginn af hinum skammlífu
dægurflugum sem heyrast mest í út-
varpinu núna.
Einkunn: 9,0 (lög),
6,0 (textar),
7,5 (túlkun) = 7,5.
Titill: Kombóið
Flytjandi: Hljómsveitin Kombóið.
Framverði Kombósins, Ellen Krist-
jánsdóttur, fyrirgefst næstum því að
semja flesta söngtexta sína á ensku.
Hún er nefnilega fædd og uppalin í
Bandaríkjum Norður-Ameríku. Þrír af tíu
söngtextum plötunnar eru líka skráðir á
Bandaríkjamenn.
Að óreyndu hefði mátt ætla að söng-
rödd Ellenar væri ekki nægilega blæ-
brigðarík til að valda heilli plötu. En það
er öðru nær. Mjúkur og fínlegur söngstíll
hennar fellur einkar vel að djasskennd-
um og hugljúfum ballöðunum. Söngur-
inn og undirleikurinn styðja hvort annað
þar sem á þarf að halda. Með einlægni
að vopni er sneytt fimlega fram hjá
væmni og tilgerð í angurværustu köflun-
um. Þetta er biátt áfram og eðlilegt eins
og hjá Cowboy Junkies og David „Twin
Þeaks“ Lynch. Vinalegt og þægilegt.
Bestu lögin: Gamall maður (eftir Ellen)
og Blue Skies (eftirTom Waits).
Einkunn: 8,0 (lög),
4.5 (textar),
8.5 (túlkun) = 7,0.
ómsveitm Unun m^nborðs pað
ia Dr. Gunna 'u má/i hvor dokt-
ptir svo sem eng heirra é eitt
rirm eriGnumfnplötunni, Smekk-
esta lagið asatnp , ^ gf betr(
>yZu-P^nnar'HeyrðU4-
Teasj°íÍPálmason-söngvari
mZveÍar-nnT SérStætt nafn
*egarZ?™Z7ósrTíatÍlþ ess
fyrra er alr/kislögregltn '
uppraeta söfnuð , ynd'að
Dúettinn T-World sannarenn einu sinni að Islendingar
standa erlendum tölvupoppurum ekki að baki.
4 4 Æ S K A N