Æskan - 01.06.1994, Page 51
Ferðalangar á fílsbaki.
kirkju sem hafði verið sprengd í seinni
heimsstyrjöldinni en er nú búið að end-
urbyggja. Við fundum engan matsölu-
stað sem okkur leist nógu vel á svo að
við fórum á sama staðinn og við höfðum
verið á kvöldið áður og fengum okkur al-
veg eins flatbökur og fyrra kvöldið! Eftir
að við höfðum snætt góðan mat stakk
Stella upp á því að taka mynd af einum
þjóninum, einum kokki og og af okkur
stelpunum! Þjónninn varð svo ánægður
að hann gaf okkur fjögur epli. Klukkan
var orðin margt og við gengum því beint
heim á hótelið og fórum að sofa.
21. júni:
RISASTÓR RENNIBRAUT
Við vöknuðum klukkan sjö næsta
morgun því að ætluðum að fara í sund-
laugina Alster Swimmhalle sem er rétt
hjá Alster-vatninu. Þar er risastór renni-
braut sem er milljón (!) sinnum stærri en
brautin við Laugardalslaugina. Þar voru
þrír stökkpallar, þrjár aðrar rennibrautir
og stór gosbrunnur. Edda beið á veit-
ingastað meðan við busluðum.
Þegar við höfðum skemmt okkur á
þessum frábæra stað fórum við á hótelið
okkar í síðasta sinn, til að pakka far-
angrinum. Við áttum að fara á járnbraut-
arstöðina og síðan í skoðunarferð um
Hamborg. Á þessari stöð er margt
betlandi fólk og fólk sem hefur misst
heimili sín af ýmsum ástæðum. Við
þurftum að ganga hratt á milli þess svo
að við færum ekki ekki að gefa því aleigu
okkar af vorkunnsemi.
Farartækið, sem átti að fara með okk-
ur í þessa ferð, var eins og lítil leikfanga-
lest. Okkur voru sýndir margir gamlir og
frægir staðir, m.a. Ráðhúsið en í því eru
640 herbergi sem ráðherrarnir vinna í!
Þar var allt mjög fallegt. Við staðnæmd-
umst líka við kirkju og fórum inn í hana.
Djásn hennar eru þrjú stór orgel. Þrisvar
á dag kemur maður til þess að spila á
eitt af þeim og gerir hann það mjög fal-
lega. Enginn mátti taka myndir þarna
inni því að kirkjan er fátæk. í stað þess
gátum við keypt póstkort til styrktar
henni.
Þegar við héldum aftur af stað var
okkur sagt að það væru 2400 brýr (
Hamborg!
Að þessari ferð lokinni fórum við á
„Burger King“ og fengum okkur ham-
borgara sem okkur fannst betri en á hin-
Drómedari í dýragarðinum - afar ánægður
með sig!
um veitingastaðnum. Þegar við vorum
orðnar pakksaddar fórum við aftur í búð-
ir til þess að eyða þýsku smápeningun-
um áður en við færum heim. Á þeirri leið
gáfum við betlurum eplin sem þjónninn
gaf okkur kvöldið áður. Þá var komið að
því að kveðja þessa skemmtilegu borg.
Á leiðinni heim fengum við að fara
fram í vélina til að heilsa flugmönnunum
í stjórnklefanum. Flugstjóri var Ingi Olsen
og flugmaður Jón Þórarinsson. í Keflavík
tókum við rútuna sem fór með okkur á
Hótel Loftleiðir. Þar kvöddum við Eddu
og héldum hvor til síns heima.
Við þökkum öllum þeim sem sáu til
þess að ferðin varð svona skemmtileg.
Kær kveðja,
Hanna og Stella.
í Alstergarði.
Ste,,a °9 Hanna sigfa
um Saxelfí.
Æ S K A N 5 1