Skírnir - 01.08.1918, Blaðsíða 17
Skirnir] Siðbót Lnthers 207*
Eeisarinn krafðist, að Lúther væri framseldur, en þjóð-
höfðingjarnir þýzku heimtuðu, að hann væri yfirheyrður
og kalladur til Worms í þeim tilgangi. Én keisarinn vildi
ekki heyra það nefnt, að farið væri að rökræða málið
við bannfærðan mann. — Að síðustu leyfði keisari þó, að
Lúther væri kallaður. Atti að gera eina tilraun enn, til
að fá hann til að afturkalla þær kenningar, sem gengu
mest í berhögg við lærdóma kirkjunnar. — Keisari skrif-
aði Lúther þvi bréf og sk’oraði á hann að koma til Worms
og hét honum vernd sinni á ferðinni að heirnan og
heim aftur.
Lúther varð ótrauður við áskoruninni. Bjóst hann þó
við öllu Það sýna þessi orð hans: »Beiti þeir ofbeldi,
eins og búast má við, því þeir ætla sér ekki að læra af
mér, þá verður að fela drotni málefnið« o. s frv. í
Erfurt varð hann að nema staðar. Fólkið þyrptist saman,.
til að sjá hetjuna. Hann prédikaði þar í klausturkirkjunni.
Lagði hann út af orðum Krists: »Fríður sé með yður*
(Jóh. 20). Útlistaði hann það, hvernig maðurinn ætti að
verða sannkristinn og' öðlast sáluhjálpina. — A baráttu
sína fyrir kristindóminn mintist hann ekki.
Keisarinn vildi lielzt ekki, að Lúther kæmi til Worms.
Gerði hann tvær óbeinar tilraunir, til að liindra komu
hans þangað. En Lúther lét ekki blekkjast af þeim. Til
Worms vildi hann fara. Var hann kominn í nánd við
bæinn, þegar Spalatin vinur lians, hirðprestur Friðriks
kjörfursta, sendi á móti honum og lét minna hann á örlög
Jóhanns Húss. Þá mælti Lúther þessi alkunnu orð:' »Þó
djöflarnir væru eins margir í Worms og þakplöturnar á
húsunum, þá færi eg þangað«. — Og til Worms fór hann.
För hans þangað var að því leyti eins konar sigurhróss-
för, að hann hafði virðulégt fylgdarlið (sjálfboðalið) og
hvervetna þyrptist fólk saman, til að heilsa honum og
fagna. Sendiboða páfans gramdist þetta mjög, en fékk
ekki við því gert. Fagnaðarlátum fólksins linti ekki, fyr
en Lúther stóð frammi fyrir höfðingjunum á ríkisþinginu.
Þar var hann einn síns liðs gagnvart höfðingjunum, senri