Skírnir

Volume

Skírnir - 01.12.1919, Page 26

Skírnir - 01.12.1919, Page 26
232 Jón Thoroddseu. [Skírnir um á hól nálægt bænum — lýkur þar lýsingunni á því, sem var ákrifamesta sýnin i ailri þessari vorgleði. Og auðvitað gleymdi hann ekki lóunni. Hér eru engar ýkjur né öfgar. Dýrð kvæðisins má finna víða á voru landi um fagta vordaga. Hvert orð í því er satt. Þar haldast í hendur fegurð og sannleikur Og sama lagið er á þjóðsöngnum »0, fögur er vor fósturjörð<í. Þar er ekkert skrum um ágæti sona og dætra landsins, sem betur fer, heldur lýsir hann í tveimur fvrstu erindunum landinu í sumar- og vetrarbúningi, leikur hér sömu listina og í »Vorið er komið® En hann er ekki eins raunsannur í þjóðsöng vorum og þar. Hann lætur álfa hoppa á hjarni. Og hér ber meira á lirifningu skálds- ins en í »Vorið er komið*. Hann byrjar kvæðið fullur aðdáunar: »0, fögur er vor fósturjörð*. Og í síðasta er- indi minnist hann þes3, að feður vorir og mæður hvíla lúin bein í moldu landsins, og að þar sjá mesta hjarta- yndi og unáður vor manna, börnin, sumar- og sólarsýn. Og þá fer honum skyndilega að hlýna. Kvæðið byrjai' á upphrópun um fegurð fósturjarðar vorrar, endar á hlýj- um blessunaróskum til vorrar fögru móður. í þessum til- finningum er lýsing á landinu lauguð. Mér finst nú, sem eg hafi aldrei heyrt vísuorðið »0. fögur er vor fósturjöi'ð« sungið með réttum raddblæ. Aðdáun skáldsins heyrist ekki, ekki fremur en vér heyrum hlýjuna, er menn syngja: „0, blessuð vertu fagra fold og fjöldinn þinna barna“. V. Ef eg ætti að spá, hvað lengst líf ætti fyrir höndum af skáldskap Jóns Thoroddsens, myndi eg nefna »0, fögur er vor fósturjörð«, gizka á, að þjóðsöngur vor lifði Gróu, þó að kerling sé ólseig og engin eilimörk á henni sýnileg. Jóhann Sigurjónsson sagði eitt sinn í viðræðu, að þau skáldrit eltust — að öðru jöfnu — bezt, er lýstu góðum mönnum og konum. Vér yrðum að trúa því, að þeimfjölg-

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.